Berglind áfram í Hólminum

Systurnar Berglind og Gunnhildur Gunnarsdætur fagna bikarmeistaratitli Snæfels á síðustu …
Systurnar Berglind og Gunnhildur Gunnarsdætur fagna bikarmeistaratitli Snæfels á síðustu leiktíð. mbl.is/Golli

Berglind Gunnarsdóttir, landsliðskona í körfuknattleik, hefur framlengt samning sinn við ríkjandi Íslands- og bikarmeistara Snæfells um eitt ár. Þetta kemur fram á vefsíðunni karfan.is. 

Berglind skoraði 8,9 stig að meðaltali í leik í Dominos-deildinni á síðustu leiktíð og tók auk þess 4,9 fráköst að meðaltali í leik. 

Snæfell hefur titilvörn sína þegar liðið mætir Skallagrími sem er nýliði í deildinni í Fjósinu í Borgarnesi á miðvikudaginn kemur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert