Við gerðum nóg

Pétur Rúnar Birgisson, leikstjórnandi Tindastóls átti fínan leik gegn ÍR í kvöld og var ánægður með stigin, en fannst liðið ekki leika neitt sérstaklega vel.

„Við gerðum nóg,“ sagði hann eftir leik. „Við vourm alltaf með undirtökin en misstum síðan einbeitinguna eða eitthvað þegar við vorum komnir með þokkalega forystu. Þeir náðu því stundum að komast andi nálægt okkur,“ sagði leikstjórnandinn sem var með 22 stig í kvöld og 5 stoðsendingar auk níu frákasta.

Hann var þokkalega sáttur með að liðið hefði unnið tvo leiki og tapað einum eftir fyrstu þrjár umferðinar, en „við ætluðum að vera 3-0 eftir þessar þrjár fyrstu umferði.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert