Haukar skipta um Kana

Ívar Ásgrímsson þjálfari Hauka.
Ívar Ásgrímsson þjálfari Hauka. mbl.is/Golli

Körfuknattleiksdeild Hauka hefur samið við Sherrod Wright um að spila með karlaliði félagsins í vetur og hefur sagt upp samningi við Aaron Brown.

Sherrod Wright spilaði með Snæfelli á síðasta tímabili. Hann varð stigahæsti leikmaður Dominos- deildarinnar með rúm 28 stig að meðaltali í leik og með frábæra nýtingu, 57% 2ja stiga nýtingu, 37% 3ja stiga nýtingu og 81% vítanýtingu.

Brown þótti ekki standa undir væntingum og því gripu Haukar til þess ráðs að rifta samningi við hann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert