Frábær vörn (myndskeið)

Jonathon Simmons í leiknum í nótt.
Jonathon Simmons í leiknum í nótt. AFP

Stórstjarnan Stephen Curry mátti sætta sig við að skot frá honum var varið þegar hann virtist eiga greiða leið að körfunni í hraðaupphlaupi þegar NBA-deildin hófst í nótt. 

Meistaraefnin í Golden State Warriors máttu sætta sig við 29 stiga tap gegn öflugu liði San Antonio Spurs sem nú er án Tim Duncans sem lagt hefur skóna á hilluna. 

Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá Jonathon Simmons verjast Stephen Curry á glæsilegan hátt í leiknum í nótt. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert