50 stiga leikur hjá Davis

Anthony Davis er hér að skora 2 af 50 stigum …
Anthony Davis er hér að skora 2 af 50 stigum sínum í leiknum. AFP

Anthony Davis gerði sér lítið fyrir og skoraði 50 stig fyrir New Orleans í leik liðsins á móti Denver í NBA-deildinni í körfuknattleik í nótt.

Stórleiur Davis dugði þó ekki til sigurs því Denver fór með sigur af hólmi, 107:102, í fyrsta leik liðanna í NBA-deildinni á tímabilinu. Davis tók að auki 16 fráköst og stal sjö boltum.

Mikið breytt lið Los Angeles Lakers, þar sem Kobe Bryant er hættur og þjálfarinn Luke Walton er við stjórnvölinn, hafði betur á móti Houston Rockets, 120:114. Jordan Clarksson skoraði 25 stig fyrir Lakers en James Harden var með 34 stig fyrir Houston og átti að auki 17 stoðsendingar.

Úrslitin í nótt:

New Orleans - Denver 100:105
Orlando - Miami 96:108
Indiana - Dallas 130:121
Boston - Brooklyn 122:117
Toronto - Detroit 109:91

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert