Hörður Axel enn í leit að sigri

Hörður Axel Vilhjálmsson í landsleik við Belgíu, þar sem hann …
Hörður Axel Vilhjálmsson í landsleik við Belgíu, þar sem hann leikur einmitt nú. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Hörður Axel Vilhjálmsson, landsliðsmaður í körfuknattleik, spilaði sinn annan leik með belgíska liðinu Limburg United í kvöld þegar liðið tapaði fyrir Antwerp Giants á heimavelli, 75:70.

Hörður, sem yfirgaf Keflvíkinga á dögunum eftir að hafa fengið stuttan samning í Belgíu, spilaði í rúma 31 mínútu í leiknum. Hann skoraði sjö stig fyrir Limburg, auk þess sem hann tók tvö fráköst og gaf tvær stoðsendingar.

Limburg hefur aðeins unnið einn leik af fyrstu fimm og er í áttunda sæti deildarinnar af tíu liðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert