Curry öflugur í sigri Golden State

Stephen Curry skoraði 31 stig í sigri sinna manna í …
Stephen Curry skoraði 31 stig í sigri sinna manna í nótt. AFP

Golden State Warriors fagnaði sigri gegn Phoenix Suns, 138:109, í NBA-deildinni í körfuknattleik í nótt.

Hinn magnaði Stephen Curry skoraði 31 stig fyrir Golden State, Klay Thompson setti niður 26 stig og Draymond Green gaf 13 stoðsendingar en Golden State hefur unnið 17 leiki á tímabilinu en tapað þremur. Eric Bledsoe var atkvæðamestur hjá Phoenix með 27 stig.

Andrew Wiggins skoraði 29 stig og Karl-Anthony Towns 27 fyrir Minnesota sem hafði betur í framlengdum leik á móti Charlotte Hornets. Kemba Walker var stigahæstur leikmanna Charlotte með 22 stig.

Isaiah Thomas tryggði Boston sigurinn gegn Philadelphia þegar hann skoraði sigurkörfuna hálfri mínútu fyrir leikslok en Thomas skoraði 37 stig fyrir Boston sem vann sinn sjötta sigur í síðustu átta leikjum.

Úrslitin í nótt:

Dallas - Chicago 107:82
Portland - Miami 99:92
Utah - Denver 105:98
Golden State - Phoenix 138:109
Charlotte - Minnesota 120:125
Toronto - Atlanta 128:84
Philadelphia - Boston 106:107
Memphis - LA Lakers 103:100

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert