Fjórði sigur New York í röð

Carmelo Anthony
Carmelo Anthony AFP

Gamla stórveldið New York Knicks virðist vera að ná sér á strik í NBA-deildinni í körfubolta en liðið vann fjórða leikinn í röð í nótt. 

New York heimsótti Miami Heat og hafði betur 114:103 en New York hefur þá unnið 12 af 21 leik á tímabilinu. Carmelo Anthony átti einn sinn besta leik á tímabilinu og skoraði 35 stig. Miami hefur aðeins unnið 7 leiki en þrír leikmenn voru á sjúkralistanum hjá liðinu í nótt. 

Úrslit:

Washington - Orlando 116:124

Miami - New York 103:114

Detroit - Chicago 102:91

Memphis - Philadelphia 96:91

Minnesota - San Antonio 91:105

Utah - Phoenix 112:105

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert