Þeir bestu sem ekki voru kjörnir

Earvin
Earvin "Magic" Johnson er í hópi þeirra sem fór á kostum í háskólaboltanum án þess þó að fá Naismith-verðlaunin. AFP

Íþróttasambandið fyrir bandarísku háskólana, NCAA, hefur birt fróðlegt myndskeið þar sem valdir eru fimm leikmenn úr sögu háskólakörfuboltans sem ekki voru útnefndir leikmenn ársins. 

Viðurkenningin sem fylgir því að vera leikmaður ársins er kölluð Naismith Trophy og var fyrst veitt árið 1969. Þá hlaut Lew nokkur Alcindor verðlaunin en hann er öllu betur þekktur sem Kareem Abdul Jabbar. 

Í meðfylgjandi myndskeiði eru sem sagt þeir fimm leikmenn sem NCAA telur vera þá bestu sem ekki hlutu verðlaunin á sínum ferli í háskólaboltanum og þar er að finna risanöfn úr sögu íþróttarinnar. 

Myndskeið af fimm bestu

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert