Martin leikmaður umferðarinnar

Martin Hermannsson.
Martin Hermannsson. Ljósmynd/David Henrot

Vefsíðan Eurobasket hefur valið íslenska landsliðsmanninn Martin Hermannsson leikmann umferðarinnar í frönsku B-deildinni í körfuknattleik. 

Martin skoraði 28 stig, tók 7 fráköst og gaf 4 stoðsendingar þegar lið hans Charleville lagði St. Quentin að velli 85:50 í 15. umferð deildarinnar.

Leikmenn sem komu næstir á eftir Martin í valinu koma frá Bandaríkjunum og Fílabeinsströndinni. 

Martin hefur spilað geysilega vel fyrir Charleville sem er í 3. sæti deildarinnar með ellefu sigra í fimmtán leikjum. Hefur hann skorað 18,7 stig að meðaltali í leik í deildinni og er næststigahæstur. Þá er hann einnig í fjórða sæti yfir flestar stoðsendingar en Martin gefur 6,4 slíkar að meðaltali. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert