Houston Rockets setti met í NBA-deildinni í körfuknattleik í nótt þegar liðið sigraði Minnesota, 142:130.
Houston skoraði 22 þriggja stiga körfur sem er met. James Harden var stigahæstur í liði Houston með 24 stig og þá átti hann 10 stoðsendingar í leiknum. Karl-Anthony Towns skoraði 37 stig fyrir Minnesota.
Stephen Curry skoraði 27 stig og Klay Thompson 24 í sigri Golden State gegn Brooklyn Nets.
Miami lagði Indiana að velli, 113:95, og hefur unnið 16 af síðustu 18 leikjum sínum. Hassan Whiteside skoraði 22 stig fyrir Miami og tók 17 fráköst.
Úrslitin í nótt:
Chicago - Cleveland 117:99
Brooklyn - Golden State 95:112
Atlanta - Orlando 86:105
Indiana - Miami 95:113
Philadelphia - New York 109:110
Minnesota - Houston 130:142
New Orleans - Dallas 83:96