Tvíframlengt og tveir oddaleikir

Fjölnismaðurinn Róbert Sigurðsson með boltann í leiknum gegn Hamri í …
Fjölnismaðurinn Róbert Sigurðsson með boltann í leiknum gegn Hamri í kvöld. Ljósmynd/Guðmundur Karl

Það verða tveir oddaleikir sem munu skera úr um hvaða lið mætast í einvíginu um sæti í úrvalsdeild karla í körfuknattleik næsta vetur, en bæði Breiðablik og Fjölnir jöfnuðu einvígi sín í undanúrslitunum í kvöld.

Það var gríðarleg spenna í Hveragerði þegar Fjölnir heimsótti Hamar með bakið upp við vegg. Staðan í hálfleik var 49:45 fyrir Fjölni, en jafnræðið hélt áfram eftir hlé. Þegar venjulegum leiktíma var lokið var staðan hins vegar hnífjöfn, 98:98, og því þurfti að framlengja.

Ekki dugði það heldur til, því eftir framlengingu var staðan enn jöfn, 105:105, og aftur þurfti að framlengja. Þar var spennan ekki minni en að lokum var það Fjölnir sem marði sigurinn, 116:114.

Róbert Sigurðsson fór á kostum hjá Fjölni, en hann skoraði 43 stig, en bæði Collin Anthony Pryor og Egill Egilsson náðu í tvennu. Hjá Hamri náði Christopher Woods tröllatvennu með 44 stig og 26 fráköst.

Í hinum leiknum fékk Breiðablik Val í heimsókn, en Blikar lentu 2:0 undir í einvíginu. Þeir minnkuðu muninn á mánudagskvöld og fullkomnuðu svo endurkomuna í kvöld með sigri, 75:72, og jöfnuðu einvígið. Blikar voru yfir í hálfleik 44:39, en Valsmenn áttu góðan fjórða leikhluta sem dugði þó ekki til að ná í sigur.

Tyrone Wayne Garland var stigahæstur hjá Blikum í kvöld með 35 stig, en hjá Val skoruðu Benedikt Blöndal og Austin Magnus Bracey báðir 21 stig.

Það verða því tveir oddaleikir um sæti í úrslitaeinvíginu. Fjölnir og Hamar mætast á laugardag og Valur og Breiðablik mætast á sunnudag.

Breiðablik - Valur 75:72

Smárinn, 1. deild karla, 23. mars 2017.

Gangur leiksins:: 5:6, 13:14, 20:19, 22:23, 25:26, 28:26, 28:26, 28:26, 28:26, 28:26, 28:26, 28:26.

Breiðablik: Tyrone Wayne Garland 35, Ragnar Jósef Ragnarsson 13/4 fráköst, Kjartan Atli Kjartansson 9, Egill Vignisson 8/4 fráköst, Snorri Vignisson 6, Leifur Steinn Arnason 2, Bjarni Geir Gunnarsson 2.

Fráköst: 7 í vörn, 8 í sókn.

Valur: Austin Magnus Bracey 21, Benedikt Blöndal 21, Urald King 10/4 fráköst, Sigurður Dagur Sturluson 8, Illugi Auðunsson 8, Oddur Birnir Pétursson 2, Sigurður Páll Stefánsson 2.

Fráköst: 5 í vörn, 3 í sókn.

Dómarar: Kristinn Óskarsson, Steinar Orri Sigurðsson, Hákon Hjartarson.

Hamar - Fjölnir 114:116

Hveragerði, 1. deild karla, 23. mars 2017.

Gangur leiksins:: 2:7, 10:16, 12:23, 20:30, 28:37, 37:40, 41:44, 45:49, 49:59, 51:65, 61:70, 65:80, 75:85, 78:89, 83:93, 98:98, 100:100, 105:105, 112:110, 114:116.

Hamar : Christopher Woods 44/26 fráköst/4 varin skot, Erlendur Ágúst Stefánsson 32/5 fráköst, Örn Sigurðarson 12, Hilmar Pétursson 8, Snorri Þorvaldsson 7/6 fráköst, Oddur Ólafsson 5/6 fráköst, Smári Hrafnsson 4, Rúnar Ingi Erlingsson 2/4 fráköst/7 stoðsendingar.

Fráköst: 42 í vörn, 9 í sókn.

Fjölnir: Róbert Sigurðsson 43/5 fráköst/8 stoðsendingar, Collin Anthony Pryor 25/19 fráköst/3 varin skot, Hreiðar Bjarki Vilhjálmsson 17, Garðar Sveinbjörnsson 14/8 fráköst, Egill Egilsson 10/10 fráköst, Bergþór Ægir Ríkharðsson 5/4 fráköst, Þorsteinn Gunnlaugsson 2.

Fráköst: 38 í vörn, 9 í sókn.

Dómarar: Sigmundur Már Herbertsson, Eggert Þór Aðalsteinsson, Jóhannes Páll Friðriksson.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert