Axel kemur til Tindastóls

Axel Kárason.
Axel Kárason. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Axel Kárason, landsliðsmaður í körfuknattleik, er á heimleið frá Danmörku og hefur samið við Tindastól um að leika með félaginu næstu tvö árin. Frá þessu er greint á feykir.is.

Axel er 34 ára gamall og lék með Tindastóli frá 2000 til 2005, síðan með Skallagrími í tvö ár, en hefur um árabil leikið í Danmörku, með Værlöse og síðan Svendborg. Hann er einmitt með Svendborg í undanúrslitaeinvígi í keppninni um danska meistaratitilinn þessa dagana en lið hans stendur þar höllum fæti, 0:2.

Axel hefur leikið 55 A-landsleiki fyrir Íslands hönd og var í hópnum sem lék í lokakeppni Evrópumótsins 2015, sem og í undankeppninni fyrir EM 2017.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert