Tryggvi í Meistaradeildarhóp Valencia

Tryggvi Snær Hlinason
Tryggvi Snær Hlinason Ljósmynd/Valenciabasket.com

Tryggvi Snær Hlinason, landsliðsmaður í körfubolta, var í leikmannahópi Spánarmeistara Valencia sem þurfti að sætta sig við tap gegn rússneska liðinu Khimki Moskvu í 1. umferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld, 75:70. 

Tryggvi er aðeins annar Íslendingurinn sem afrekar það að vera í leikmannahópi í sterkustu deild Evrópu. Jón Arnór Stefánsson lék með Roma og Málaga í sömu keppni á sínum tíma. Tryggvi kom hins vegar ekki við sögu í dag, var allan tímann á varamannabekknum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert