Gengur hvorki né rekur hjá Hauki

Haukur Helgi Pálsson í leik með íslenska karlalandsliðinu í körfubolta …
Haukur Helgi Pálsson í leik með íslenska karlalandsliðinu í körfubolta á EM 2017. Ljósmynd/Skúli B. Sigurðsson

Haukur Helgi Pálsson og félagar hans hjá Cholet fara illa af stað í frönsku úrvalsdeildinni í körfubolta karla Haukur Helgi skoraði 11 stig og tók fráköst þegar Cholet tapaði, 80:77, fyrir Nanterra í fimmtu umferð deildarinnar í kvöld.

Cholet hefur einungis haft betur í einum af fyrstu fimm deildarleikjum liðsins á yfirstandandi leitkíð er jafnt fjórum liðunum í sætunum fyrir ofan neðsta sæti deildarinnar.

Haukur Helgi hefur hins vegar heilt yfir leikið nokkuð vel fyrir Cholet það sem af er leiktíðar. Haukur Helgi er í fimmta til sjötta sæti á listanum yfir stigahæstu leikmenn Cholet í deildinni á leiktíðinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert