Tryggvi Snær Hlinason og félagar hans í spænska meistaraliði Valencia unnu sinn annan leik í röð í Meistaradeild Evrópu er liðið fór í heimsókn til Baskonia, sem einnig leikur á Spáni og höfðu betur 80:63.
Tryggvi hefur hægt og rólega fengið að spila meira fyrir Valencia og lék hann um tvær mínútur í kvöld. Hann stal einum bolta og varði annan á þeim tíma sem hann spilaði.
Valencia hefur leikið þrjá leiki í keppninni, unnið tvo og tapað einum.