LeBron öflugur í sigri Cleveland

LeBron James að kljást við Wesley Johnson leikmann LA Clippers …
LeBron James að kljást við Wesley Johnson leikmann LA Clippers í nótt. AFP

LeBron James var í miklu stuði hjá Cleveland sem vann 118:115 sigur á LA Clippers í NBA-deildinni í körfuknattleik í nótt er 11 leikir fóru fram. LeBron setti niður 39 stig og tók 14 fráköst á þeim 46 mínútum sem hann spilaði í góðum sigri liðsins í framlengdum leik. Kevin Love setti niður 25 stig. Cleveland hefur níu sigra í sjöunda sæti austurdeildarinnar en Clippers fimm sigra í 10. sæti vesturdeildarinnar.

Indiana Pacers unnu óvæntan en góðan sigur á Detroit Pistons í NBA-deildinni í nótt en liðin eru á ólíkan stað í austurdeildinni þar sem lokatölur urðu 107:100 heimamönnum í vil. Lance Stephenson kom inn af varamannabekknum fyrir Indiana og setti niður öll sín 13 stig í fjórða leikhluta, þar á meðal lykilþrist er nokkrar mínútur voru eftir en Indiana kom til baka eftir að hafa verið 22 stigum undir. Indiana er í 10. sæti vesturdeildarinnar en Detroit í 2. sæti.

Úrslit næturinnar:

107:100 Indiana - Detroit

88:91 Washington - Miami

118:113 Cleveland - LA Clippers

107:84 Toronto - New York Knicks

118:107 Brooklyn - Utah

123:120 Chicago - Charlotte

104:101 San Antonio - Oklahoma

87:111 Dallas - Minnesota

86:82 Sacramento - Portland

146:114 Denver - New Orleans

113:122 LA Lakers -Phoenix

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert