Ekki tala um okkur eins og við séum aular

Viðar Örn Hafsteinsson, þjálfari Hattar, er iðulega með munninn fyrir neðan nefið þegar kemur að viðtölum og í kvöld var engin breyting þar á eftir 86:77-tapið gegn Njarðvík í Dominos-deild karla í körfubolta.

Viðar var gríðarlega ósáttur með dómaratríóið í kvöld, en liðið var alls ekki langt frá því að landa sínum fyrsta sigri og var Viðar vissulega ánægður með baráttu sinna manna þrátt fyrir ósigurinn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert