Tryggvi minnti á sig með troðslu

Tryggvi Snær Hlinason í treyju Valencia.
Tryggvi Snær Hlinason í treyju Valencia. Ljósmynd/Valenciabasket.com

Tryggvi Snær Hlinason var í eldlínunni í Evrópudeildinni í körfuknattleik með liði sínu Valencia í kvöld þegar liðið mætti Real Madrid í spænskum slag.

Real vann leikinn 91:74 en viðureignin var jöfn og spennandi framan af. Tryggvi spilaði í fjórar mínútur og skoraði þrjú stig; eitt af vítalínunni auk þess sem hann minnti á sig með einni troðslu.

Valencia hefur gengið afleitlega í keppninni til þessa og aðeins unnið þrjá leiki af þrettán.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert