Lokahátíð í kvöld

Frá hátíðardagskrá Reykjavíkurleikanna í Laugardalshöll um síðustu helgi.
Frá hátíðardagskrá Reykjavíkurleikanna í Laugardalshöll um síðustu helgi. Sportmyndir.is

Glæsileg hátíðardagskrá verður í Laugardalshöll í kvöld sem er endapunktur Reykjavíkurleikanna 2015. Húsið verður opnað fyrir matargesti klukkan 19 en aðrir gestir mæta klukkan 20 og þá er frítt inn og allir velkomnir.

Á dagskrá hátíðarinnar er meðal annars íþróttasýning þar sem íþróttafólk úr ýmsum íþróttagreinum leikanna stígur á svið, lag leikanna verður flutt og einn karl og ein kona úr hverri íþróttagrein seinni keppnishelgarinnar fá verðlaun fyrir frábæran árangur. Þá verður dansað til úrslita í alþjóðlegri latin-danskeppni Reykjavíkurleikanna, sem ætíð er mikið sjónarspil.

Hér má finna stutt myndband frá hátíðardagskránni um síðustu helgi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert