Veiði í Veiðivötnum á Landmannaafrétti hófst í gær klukkan 15:00 og samkvæmt fyrstu upplýsingum þaðan fer veiði vel af stað.
Sagt er frá því inn á sérstökum vef fyrir vötnin að þrátt fyrir leiðinda veður sem einkenndist af kulda, roki og rigningu þá urðu menn víða varir við fisk og sumir veiddu ágætlega. Fréttist af góðri veiði úr Fossvötnum, Skálavötnunum, Ónýtavatni, Snjóölduvatni, Litlasjó og í Hraunvötnum. Sex punda fiskar komu á land í Litlasjó og allt að átta punda fiskar veiddust í Skálavatni og í Hraunvötnum. Þá urðu menn meira að segja varir við fisk í Grænavatni sem þótti tíðindum sæta.
Fram kemur að flestar leiðir við vötnin séu orðnar greiðfærar, en þó enn þá skaflar við Eyvík í Litlasjó og við Eskivatnsvað. Þá eru vöðin á ánum eins og best verður á kosið og ástand vatna er mjög gott og ís löngu farinn af þeim.
Sumarið 2015 veiddust alls 24.361 fiskur í Veiðivötnum sem skiptust þannig að 5.820 fiskar komu í net og 18.541 fiskur á stöng. Stærsti fiskurinn sem veiddist á stöng árið 2015 var 12 punda urriði sem veiddist í svokölluðu Ónefndavatni.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
101 cm | Vatnsdalsá | Erlendur veiðimaður | 29. september 29.9. |
101 cm | Eystri-Rangá | Grzegorz Loszewski | 27. september 27.9. |
105 cm | Hvítá við Iðu | Katrín Tanja Davíðsdóttir | 24. september 24.9. |
101 cm | Víðidalsá | Jón Eðvald Halldórsson | 22. september 22.9. |
107 cm | Grímsá | Jón Jónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Miðfjarðará | Agnar Sigurjónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Hvítá við Iðu | Gunnar Pétursson | 20. september 20.9. |