Svalbarðsá í Þistilfirði opnaði um mánaðamótin og fer veiði vel af stað að sögn leigutaka.
Samkvæmt upplýsingum frá Veiðifélaginu Hreggnasa, sem annast leigu á ánni, veiddust 22 laxar fyrstu þrjá dagana á tvær stangir. Allt var það vænn tveggja ára lax úr sjó, 76 til 92 cm langir.
Lítur því vel út með veiði í ánni í sumar, en metveiði var þar síðastliðið sumar þegar 787 laxar veiddust. Meðalveiði síðustu árin hefur verið rúmlega 400 laxar á tvær til þrjár stangir.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
101 cm | Vatnsdalsá | Erlendur veiðimaður | 29. september 29.9. |
101 cm | Eystri-Rangá | Grzegorz Loszewski | 27. september 27.9. |
105 cm | Hvítá við Iðu | Katrín Tanja Davíðsdóttir | 24. september 24.9. |
101 cm | Víðidalsá | Jón Eðvald Halldórsson | 22. september 22.9. |
107 cm | Grímsá | Jón Jónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Miðfjarðará | Agnar Sigurjónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Hvítá við Iðu | Gunnar Pétursson | 20. september 20.9. |