Hlutabréf hafa hækkað í verði í Kauphöll Íslands í dag en bæði Kaupþing og Glitnir birtu ársuppgjör í morgun. Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,92% og er 7064 stig. Bréf Kaupþings hafa hækkað um 1,77%, bréf Glitnis hafa hækkað um 0,39% og bréf Landsbankans hafa hækkað um 0,33% svo nokkuð sé nefnt.