Viðskipti
| mbl
| 10.4.2008
| 8:57
| Uppfært
10:46
Seðlabankinn hækkar stýrivexti
Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka stýrivexti
bankans um 0,5% og verða þeir 15,5% eftir hækkunina. Bankinn hækkaði stýrivexti
síðast þann 25, mars sl. um 1,25%, á auka vaxtaákvörðunardegi. Er það mesta
hækkun stýrivaxta síðan núverandi fyrirkomulag peningamála var tekið upp. Hefur bankinn því hækkað stýrivexti um 1,75% á tæpum þremur vikum.
Þetta er 21. vaxtahækkun Seðlabankans í röð frá því bankinn byrjaði að hækka vexti á miðju ári 2004. Stýrivextir bankans eru eins og áður sagði nú 15,5%, en voru 5,16% fyrir fjórum árum.
Klukkan 11 verður fréttamannafundur bankastjórnar sendur út á vef bankans. Þar verða færð rök fyrir vaxtaákvörðun og efni Peningamála kynnt. Næsti vaxtaákvörðunardagur bankastjórnar Seðlabanka Íslands er 22. maí nk.
Greiningardeildir Glitnis og Landsbankans spáðu því að stýrivextir yrðu hækkaðir um 0,5% nú en Greiningardeild Kaupþings spáði því að stýrivöxtum yrði haldið óbreyttum nú.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
Erlendar viðskiptafréttir
Hugin
06:11
Koninklijke Ten Cate NV : TenCate Advanced Composites completes acquisition of PMC Baycomp
Hugin
06:11
Nordic Mines announces a fully underwritten rights issue of approximately SEK 220 million
Hugin
06:11
Canadian Orebodies (TSXV:CO) Receives Initial Buy Recommendation from eResearch Corp - Video Summary of Report Posted on www.investmentpitch.com



















