Hlutabréf SPRON og Exista hafa hækkað umtalsvert í verði en eins og greint var frá í gær hafa stjórnir SPRON og Kaupþings samþykkt samruna félaganna. SPRON hefur hækkað um 8,78% og stendur í 3,47 en hluthafar SPRON frá 3,83 krónur fyrir hvern hlut. Verður greitt með hlutum í Exista, sem hefur hækkað um 3,45% í dag, og Kaupþingi. Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 1,01%.