Ákveðið hefur verið að senda skip HB Granda til síldveiða á nýjan leik eftir það hlé sem gert var á veiðunum í síðustu viku. Lundey NS fer til veiða í dag, Faxi RE í fyrramálið og Ingunn AK fer væntanlega til veiða á fimmtudag.
Fram kemur á vef fyrirtækisins, að norsk og færeysk hafi fengið skip nokkurn síldarafla um helgina eftir nokkurra daga leit. Veiðin var innan og utan norsku lögsögunnar.
Hlé var gert á síldveiðum HB Granda skipanna um fyrri helgi en um 2000 tonnum af síld var landað á Vopnafirði í byrjun síðustu viku. Íslensk vinnsluskip hafa að undanförnu leitað að síld í veiðanlegu magni í félagi við færeysk og norsk skip en sú leit bar hins vegar lítinn árangur fyrr en nú um helgina.
Það sem af er vertíðinni hafa skip HB Granda veitt alls um 35 þúsund tonn af síld og makríl. Aflaverðmætið er um einn milljarður króna. Alls hefur verið varið 165 úthaldsdögum á veiðunum fram að þessu og meðalaflaverðmæti á úthaldsdag er því um sex milljónir króna. Svo til allur aflinn hefur fengist innan íslensku lögsögunnar.
Fyrirtækið á nú eftir um 20 þúsund tonna síldarkvóta og við reiknar með því að nú þegar veiðin hefur tekið sig upp að nýju verði veiðisvæðið í Síldarsmugunni og norsku lögsögunni.