Aukinn kvóti í Barenshafi

AP

Samkomulag hefur náðst á milli Norðmanna og Rússa um að auka þorskkvóta í Barentshafi um 20% frá yfirstandandi ári. Frá þessu er greint í frétt á vefsíðu LÍÚ.

Segir þar að kvótinn verði 525 þúsund tonn fyrir árið 2009. Hlutdeild Íslands í leyfilegum heildarafla þorsks er 1,85%, sem svarar til ríflega 9.700 tonna upp úr sjó.

Norðmenn og Rússar ákváðu hins vegar að fylgja tillögum Alþjóðahafrannsóknaráðsins, ICES, um 390.000 tonna loðnukvóta í Barentshafi, segir í frétt LÍÚ og er vísað til vefsíðu sambands norskra útgerðarmanna frá því í gærkvöldi.

„Atle Vartdal, stjórnarmaður í Fiskebat og einn norsku samninganefndarmannanna, segir um 20% aukninguna að þar liggi traust vísindaleg rök að baki. Því hafi verið vikið frá þeirri stjórnunarreglu fyrir næsta ár að kvóta mætti ekki auka um meira en 10%. Hann undirstrikar að reglunum verði fylgt á nýjan leik árið 2010,“ segir á vefsíðu LÍÚ.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK