Egla óskar eftir nauðasamningum
Stjórn Eglu hf. hefur ákveðið að leita heimildar til formlegs nauðasamnings við lánardrottna félagsins. Síðdegis í gær var haldinn fundur sem allir lánardrottnar félagsins voru boðaðir til, þar sem kynnt var fjárhagsstaða félagsins, en jafnframt frumvarp að nauðasamningi.
Kaupþing og Alfesca verðmætustu eignirnar
Nauðasamningsfrumvarpið gerir ráð fyrir að 15% krafna verði greiddar á næstu mánuðum, ef frumvarpið verður samþykkt, en verði verðmæti eigna félagsins meira, þá verður allur mismunurinn greiddur til lánardrottna. Að auki er lánardrottnum boðin aðild að stjórn félagsins meðan látið er reyna á verðmæti og sölu eigna Eglu hf.
Verðmætustu eignir Eglu fyrir bankahrun voru hlutir í Kaupþingi banka. og Alfesca sem vistaðir voru í erlendum eignarhaldsfélögum þess. Egla hf. væntir þess að samþykki nægjanlegs fjölda lánardrottna fyrir nauðasamningstilrauninni liggi fyrir á næstu dögum. Gangi þær væntingar eftir mun fundur lánardrottna í lok maí nk. taka endanlega afstöðu til nauðasamningsfrumvarpsins, að því er segir í tilkynningu.




















