Tengjast ekki Exeter Holding
Stjórnarmenn í MP Banka segjast í yfirlýsingu ekki vera tengdir félaginu Exeter Holding, sem átti viðskipti með bréf í Byr sparisjóði. Stjórnarmennirnir segjast hafa átt félagið, sem þá bar nafnið Heilsusjóðurinn, til ársins 2006. Þetta hefði mátt sannreyna með því að skoða opinber gögn.
Yfirlýsing frá stjórnarmönnum MP Banka:
„Ríkissjónvarpið birti í síðustu viku mjög áberandi frétt um að undirritaðir stjórnarmenn MP Banka væru tengdir félagi sem heitir Exeter Holdings. Það félag átti samkvæmt fréttinni að hafa átt í viðskiptum sem Ríkissjónvarpinu þóttu fréttnæm. Við undirritaðir vorum nafngreindir eins og við hefðum átt aðild að þeim viðskiptum. Það er rangt. Tenging okkar við ofangreint félag felst í því að við vorum á meðal stofnenda þess fyrir sjö árum. Frá árinu 2006 höfum við ekkert komið nálægt því, ekki setið í stjórn eða tekið þátt í neinum viðskiptum á þess vegum. Það er auðvitað margþekkt að einstaklingar stofni félög en hverfi síðan frá þeim.
Nánar var þessu þannig farið að við undirritaðir stjórnarmenn í MP Banka vorum tengdir Heilsusjóðnum ehf. frá stofnun árið 2002 til ársins 2006. Þá eignaðist núverandi eigandi félagið, breytti meðal annars nafni þess í Exeter Holdings og tók að fullu við stjórn þess. Undirritaðir stjórnarmenn í MP Banka hafa ekki haft tengsl við félagið né borið nokkra ábyrgð á því síðan eigendaskiptin fóru fram árið 2006.
Í frétt Ríkissjónvarpsins var hins vegar fullyrt að þessi tenging ætti enn við. Allir hljóta að sjá grundvallarmun á því að hafa verið tengdur félagi fyrir nokkrum árum, eða tengjast því og bera ábyrgð á því nú. Fréttamaður RÚV og heimildarmaður hans kusu því miður að halla réttu máli, þótt skýr opinber gögn hafi legið fyrir. Með aðferðafræði þeirra mætti halda því fram að stofnendur Loftleiða væru tengdir FL Group. Fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra er öllum opin. Hún er ekki á Tortola eyjum, heldur að Laugavegi 166, Reykjavík.
Enn einu sinni verður einnig að árétta að hafi stofnfjáreigendur í Byr sparisjóði eitthvað að athuga við lánveitingar Byrs verða þeir að eiga það við stjórn Byrs. MP Banki hefur ekkert yfir þeim að segja. Byr er næststærsti hluthafinn í MP Banka. Sú fjárfesting hefur verið arðbær fyrir Byr og vonum við að svo verði áfram um ókomin ár. Við hina ágætu starfsmenn Byrs er ekki að sakast þó eiginfjárhlutfall Byrs sé nú aðeins rétt rúmlega 8%. Ef stofnfjáreigendur hefðu ekki greitt sér 13 milljarða króna í arð í fyrra væri hlutfallið u.þ.b. 15%. Væri ekki nær að endurfjárfesta hluta af arðinum til að laga stöðuna, fremur en að drepa málum á dreif með því að reyna að gera eina bankann sem eftir er tortryggilegan?“
Undir þetta rita Margeir Pétursson, Sigfús Ingimundarson og Sigurður Gísli Pálmason, stjórnarmenn í MP Banka.



















