Markaðsmisnotkun varðar sex ára fangelsi

Ólafur Ólafsson, sem á þeim tíma var annar stærsti eigandi Kaupþings, ásamt meðlimi Al-Thani-fjölskyldunnar og ... stækka

Ólafur Ólafsson, sem á þeim tíma var annar stærsti eigandi Kaupþings, ásamt meðlimi Al-Thani-fjölskyldunnar og öðrum vinum í Flatey 31. júlí í fyrra. Ljósmynd/Hanna Lilja

mbl.is Eftir Þorbjörn Þórðarson - thorbjorn@mbl.is

Tilgangur rannsóknar embættis sérstaks saksóknara á kaupum sjeiks Mohamed Bin Khalifa Al-Thani á rúmlega 5% eignarhluti í Kaupþingi í september síðastliðnum er grunur um meinta markaðsmisnotkun og eftir atvikum brot á auðgunarbrotakafla hegningarlaga.

Kaup Sjeiksins á hlutabréfum í Kaupþingi voru tilkynnt hinn 22. september sl. en hann keypti 37,1 milljón hluta á genginu 690 kr. á hlut. Kaupverðið var því tæpir 26 milljarðar króna og hans hátign Al-Thani varð í kjölfarið þriðji stærsti hluthafi bankans. 

Viðskiptin fóru þannig fram að Kaupþing veitti Ólafi Ólafssyni, sem á þeim tíma var annar stærsti hluthafi bankans, lán fyrir helmingi kaupverðsins í gegnum félag hans sem skráð er á Jómfrúaeyjum, tryggt með veði í bréfunum sjálfum og án persónulegrar ábyrgðar hans sjálfs.

Að sögn Ólafs hafði Al-Thani lagt fram ábyrgðir að upphæð 200 milljónir evra vegna væntanlegra viðskipta sinna við Kaupþing og var hluti þeirra notaður til ábyrgðar fyrir láni frá Kaupþingi beint til Q Iceland Finance, samtals 12,8 milljarðar króna. Hinn helmingur kaupverðsins lánaði Kaupþing einnig, en hann var lánaður til félags á bresku Jómfrúreyjum, skráð á Ólaf Ólafsson, sem lánaði féð síðan áfram til Al-Thani. Þannig var Al-Thani ekki í persónulegum ábyrgðum fyrir helmingi lánsins, 12,8 milljörðum króna. Ólafur sagði við Morgunblaðið í janúar síðastliðnum að hann sjálfur hefði ekki haft neinn ávinning af þessum viðskiptum.

Tapleysi vakti grunsemdir
Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins vakti sú staðreynd að tap sjeiksins á Kaupþingsviðskiptunum var ekki jafn mikið og haldið var í fyrstu ákveðnar grunsemdir starfsmanna PricewaterhouseCoopers um að ekki væri allt með felldu, en fyrirtækið fór ofan í saumana á rekstri Kaupþings í aðdraganda bankahrunsins.

Telma Halldórsdóttir, stjórnarmaður í Q Iceland Finance ehf. eignarhaldsfélagi Al-Thanis, sagði við Morgunblaðið í janúar síðastliðnum að allt væri uppi á borðum vegna kaupa félagsins á hlutabréfunum. Hún sagði jafnframt að félagið væri skuldlaust við Kaupþing. „Þessi kaup voru sannarlega kláruð,“ sagði Telma, og sagðist hafa kvittanir því til staðfestingar.

Rökstuddur grunur er skilyrði
Í tengslum við rannsókn embættis sérstaks saksóknara fóru fram húsleitir á tíu stöðum í dag og síðastliðinn þriðjudag, að undangengnum úrskurðum Héraðsdóms Reykjavíkur. Með húsleitunum geta rannsakendur haldlagt gögn og muni sem kunna að skipta máli fyrir rannsókn málsins, t.d tölvupósta.

Samkvæmt 3. mgr. 74. gr. laga um meðferð sakamála er skilyrði fyrir húsleit að rökstuddur grunur leiki á að framið hafi verið brot sem sætt getur ákæru og að sakborningur hafi verið þar að verki, enda séu augljósir rannsóknarhagsmunir í húfi.

Markaðsmisnotkun getur varðað allt að sex ára fangelsi 
Sýndarviðskipti, sem falla undir markaðsmisnotkun, geta varðað allt að sex ára fangelsi, samkvæmt 117. gr. laga um verðbréfaviðskipti. Um er að ræða viðskipti eða tilboð um viðskipti sem byggð eru á tilbúningi eða þar sem notuð eru einhver form blekkingar eða sýndarmennsku.

Öll form blekkingar falla undir þetta ákvæði laganna. Lögfræðingur sem Morgunblaðið ræddi við sagði að ef dregin væri upp einhver mynd af viðskiptum, þegar raunveruleikinn væri annar vegna skorts á upplýsingum, þá geti það hugsanlega fallið undir ákvæði 117. gr.  Hann sagði að ef sú staða kæmi upp að menn sem ættu í hlutabréfaviðskiptum og væru ekki að taka neina áhættu þá vekti það spurningar um hvort ekki væri nauðsynlegt að upplýsa um það, þ.e áhættuleysið.

Skilaboð send út á markaðinn
Í venjulegum hlutabréfaviðskiptum er tekin ákvörðun um kaup á grundvelli hagnaðarvonar með þeirri áhættu sem slíkum viðskiptum fylgir. Þegar fjársterkur og öflugur aðili kaupir hlutabréf skráðs félags sendir það þau skilaboð út á markaðinn að viðkomandi líti svo á að hlutabréf félagsins séu verðugur fjárfestingarkostur.

Einnig fellur það undir markaðsmisnotkun í áðurnefndu ákvæði laganna um verðbréfaviðskipti að dreifa orðrómi eða fréttum sem gefa eða eru líklegar til að gefa rangar eða misvísandi upplýsingar eða vísbendingar um fjármálagerninga, t.d. kaupsamninga, enda hafi sá sem dreifði upplýsingunum vitað eða mátt vita að upplýsingarnar voru rangar eða misvísandi.

Ekki voru gefnar upplýsingar til almennings um hvernig viðskiptin urðu til þegar kaup sjeiks Mohamed Bin Khalifa Al-Thani voru kynnt í september sl. Kaup sjeiks frá Katar á 5% eignarhlut voru á yfirborðinu mikil traustsyfirlýsing fyrir íslenskan banka, eðli málsins samkvæmt. „Við teljum að þetta sé mikil traustsyfirlýsing fyrir félagið,“ sagði Hreiðar Már Sigurðsson, þáverandi forstjóri Kaupþings, í samtali við Morgunblaðið þegar viðskiptin voru kunngjörð í september. Ekkert lá fyrir á þeim tíma um fyrirkomulag viðskiptanna og litla áhættu sjeiksins. Ekki lá fyrir að Ólafur Ólafsson hefði fjármagnað þau til helminga með láni frá Kaupþingi, án persónulegrar ábyrgðar. Það er hins vegar sjálfstætt athugunarefni hvort sú staðreynd, að þeir hafi látið hjá líða að tilkynna um tilurð viðskiptanna, falli undir áðurnefnt ákvæði um markaðsmisnotkun.

Ólafur Ólafsson

Ólafur Ólafsson

Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, og Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri bankans.

Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, og Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri bankans. mbl.is/Brynjar Gauti

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Viðskipti »

Bergþóra Þorkelsdóttir.

Verðhækkanir ytra á leið til Íslands

06:31 Fóðurinnflytjendur þurfa að horfast í augu við að hækka verð eftir miklar hráefnisverðhækkanir á alþjóðlegum mörkuðum. „Ég á von á því að við þurfum að hækka verð á fóðri snemmsumars,“ segir Bergþóra Þorkelsdóttir, framkvæmdastjóri Líflands sem er umsvifamikill fóðurframleiðandi, í samtali við Morgunblaðið. Meira »

Hlutabréf lækkuðu um 2% í Japan

06:29 Veruleg lækkun varð á verði hlutabréfa þegar viðskipti hófust í morgun. Í fyrstu viðskiptum lækkaði hlutabréfavísitalan um tæplega 2%. Meira »

Reginn hagnaðist um 138 milljónir

Verslunarmiðstöðin Smáralind.
Í gær, 21:26 Fasteignafélagið Reginn ehf. hagnaðist um 138 milljónir króna á fyrsta fjórðungi 2012 eftir skatta og er reksturinn í samræmi við áætlanir samkvæmt fréttatilkynningu frá félaginu. Meira »

Seðlabanki Íslands heldur gjaldeyrisútboð

Í gær, 17:00 Seðlabanki Íslands býðst til að kaupa evrur í skiptum fyrir íslenskar krónur til fjárfestingar til langs tíma í íslensku atvinnulífi eða gegn greiðslu í ríkisverðbréfum í flokknum RIKS 33 0321. Þetta kemur fram í tilkynningu frá SÍ. Meira »

Kaupmáttarrýrnunin frá 2008 7,6%

Í gær, 14:43 Kaupmáttaraukningin er 5,1% á síðustu tólf mánuðum en þrátt fyrir það hefur kaupmáttur launa rýrnað um 7,6% frá ársbyrjun 2008. Þetta kemur fram á vef BSRB. Meira »

Kaupin á Motorola Mobility frágengin

Í gær, 13:52 Bandaríska tölvufyrirtækið Google hefur lokið við kaup á farsímaframleiðandanum Motorola Mobility.  Meira »

Tekin verði upp grísk evra

Höfuðstöðvar Deutsche Bank í Frankfurt.
Í gær, 21:02 Þýski bankinn Deutsche Bank hefur velt upp þeirri hugmynd að tekin yrði upp sérstök grísk evra sem fella mætti gengið á án þess að Grikkland þyrfti að yfirgefa evrusvæðið ef ríkisstjórn skyldi komast til valda eftir þingkosningarnar 17. júní næstkomandi sem styddi ekki kröfur Evrópusambandsins og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um frekari aðhaldsaðgerðir í landinu. Meira »

Vilja eignast meira í Össuri

Sarah Reinertsen á gervifæti frá Össuri.
Í gær, 15:07 William Demant Invest, sem er stærsti hluthafinn í Össuri hefur gert öðrum hluthöfum í félaginu tilboð um að kaupa hlut þeirra í félaginu. Fjárfestingarfélagið ætlar sér ekki að yfirtaka Össur heldur er tilboðið af tæknilegum ástæðum þar sem hlutur William Demant er kominn yfir 39,88%. Meira »

Innsýn í reksturinn

Facebook lækkar enn

Nasdaq bauð Facebook velkomið á föstudag
Í gær, 14:14 Verð hlutabréfa samskiptavefjarins Facebook hélt áfram að lækka þegar viðskipti hófust á Wall Street í dag.  Meira »

Nýtt umsjónarkerfi frá NordicPhotos

Arnaldur Gauti Johnson, framkvæmdastjóri NordicPhotos.
Í gær, 11:56 NordicPhotos myndabankinn hefur sent frá sér PixPuffin, myndumsjónarkerfi fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki, sem hýst er í vistvænu gagnaveri. Meira »

Reiknar út lánskostnað milli Íslands og evru-svæðis

Í gær, 11:24 Sett hefur verið upp lánareiknivél á vef Já Ísland þar sem hægt er að bera saman hvað kostar að taka húsnæðislán á Íslandi og hvað það kostar í evruríki. Meira »

Jákvæð teikn á lofti

Í gær, 12:31 Útlit er fyrir að Norðurlöndin komist hjá samdráttarskeiði ólíkt mörgum öðrum ríkjum Evrópu. Er þetta einkum rakið til hagvaxtar á Íslandi og Noregi, samkvæmt frétt Bloomberg fréttastofunnar sem fjallar um nýja hagvaxtaspá OECD. Meira »

Óvíst með hvort rannsókn verði haldið áfram

Vincent Tchenguiz.
Í gær, 11:51 Yfirmaður efnahagsbrotadeildarbresku lögreglunnar, Serious Fraud Office, David Green, mun taka ákvörðun um hvort rannsókn á Vincent Tchenguiz í tengslum við fall Kaupþings verði haldið áfram fyrir 18. júní. Meira »

Úrræði SFO í Tchenguiz rannsókn

Robert og Vincent Tchenguiz.
Í gær, 10:47 Efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar, Serious Fraud Office, íhugaði að koma óeinkennisklæddum lögreglumanni fyrir í næturklúbbnum Annabel í tengslum við rannsóknina á bræðrunum Robert og Vincent Tchenguiz. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
  ISK   USD
  EUR   GBP
  CAD   DKK
  NOK   SEK
  CHF   JPY
Gengi gjaldmiðla

Sigurður Már Jónsson

mynd Framtíðarfyrirtæki eða hvað?
Það er ekki hægt að segja annað en að uppbygging og útbreiðsla samskiptasíðunnar Facebook hafi verið ævintýri líkust. Ef litið er á notendur Facebook Meira

Frosti Sigurjónsson

mynd Afnám hafta: Umræður á Alþingi
Afnám gjaldeyrishafta er afar mikilvægt úrlausnarefni stjórnvalda sem hefur verið furðu lítið rætt í Alþingi. Svo bar þó við að málið komst á dagskrá Meira

Már Wolfgang Mixa

mynd Vísitala fjármálalæsis á Íslandi fellur
Stofnun um fjármálalæsi og sálfræðisvið viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík birtir fimmtudaginn 3. maí rannsókn þar sem þekking, viðhorf og hegðun Meira

Bjarni Gylfason

mynd Iðjusemi jafngildir ekki aukinni framleiðni
Þrátt fyrir djúpa kreppu síðustu ár verður ekki litið framhjá þeirri mikilvægu staðreynd að hagþróun hér á landi undanfarna áratugi hefur að jafnaði Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir