Sund gat aldrei tapað á að kaupa í móðurfélagi Sterling
Við kaupin lá samkomulag fyrir sem tryggði að Baugur, sem á þeim tíma var stærsti hluthafinn í FL Group, myndi kaupa hlutinn á sama verði og Sund ehf. keypti hann á, um 2,7 milljarða króna. Þannig gat Sund í raun ekki tapað á því að kaupa í NTH. Sund seldi hlut sinn í NTH í árslok 2007, þ.e. innan árs frá því að hann var keyptur.
NTH var á þessum tíma móðurfélag Sterling-flugfélagsins, en efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra framkvæmdi húsleitir á miðvikudag vegna rannsóknar á viðskiptum fv. eigenda félagsins með Sterling.
Þegar Pálmi Haraldsson keypti Sterling á sínum tíma var kaupverðið fjórir milljarðar króna. Sterling var selt áfram til FL Group um hálfu ári síðar á 15 milljarða og að lokum til hins nýstofnaða NTH fyrir 20 milljarða. Hermt er að þetta hafi einvörðungu verið gert til að koma Sterling úr bókum FL Group, en eigendur þess greiddu sér út 15 milljarða króna í arð fyrir árið 2006.



















