Hugsanleg riftunarmál til skoðunar

Slitastjórn Kaupþings hefur ráðið endurskoðunarfyrirtækið PricewaterhouseCoopers (PwC) til að sinna rannsókn á ráðstöfunum bankans áður en hann fór í greiðslustöðvun með sérstakri áherslu á mögulega riftun ráðstafana þrotamanns á grundvelli  gjaldþrotaskiptalaga.

Skilanefnd Kaupþings réði PwC, að beiðni Fjármálaeftirlitsins síðastliðið haust til að kanna hvort bankinn eða aðilar tengdir honum hefðu á síðustu vikunum fyrir fall bankans vikið frá innri reglum hans eða brotið gegn reglum um starfsemi fjármálafyrirtækja, lögum um verðbréfaviðskipti eða almennum hegningarlögum.

Í tilkynningu frá slitastjórn Kaupþings segir, að ítarlegri úttekt hafi verið skilað til Fjármálaeftirlitsins um síðustu áramót og hafi sú úttekt þegar orðið grundvöllur frekari rannsókna. Jafnframt hafi embætti sérstaks saksóknara og rannsóknarnefnd Alþingis fengið aðgang að úttektinni. Þá hafi mikið starf verið unnið af hálfu skilanefndar og starfsfólks hennar sem muni nýtast við undirbúning riftunarmála slitastjórnar.

Kaupþing hefur verið í greiðslustöðvun frá 24. nóvember 2008. Slitastjórn bankans var skipuð 25. maí s.l. Verkefni slitastjórnar er m.a. að kanna alla löggerninga og ráðstafanir í rekstri bankans í samræmi við riftunarákvæði gjaldþrotaskiptalaga.

Um er að ræða viðamikla rannsókn þar sem farið verður yfir bókhald bankans og löggerninga allt að tvö ár aftur í tímann en þess má geta að færslur í bókhaldi bankans voru margar milljónir á mánuði. Helstu ráðstafanir sem koma til skoðunar eru: Lánveitingar, innlán, afleiðuviðskipti, verðbréfaviðskipti, fjármagnshreyfingar milli fyrirtækja og landa, flóknir fjármálagerningar, starfsmannatengdar greiðslur og viðskipti. Sérstaklega verða skoðuð viðskipti við nákomna aðila í skilningi gjaldþrotaskiptalaganna, stærstu hluthafa bankans, helstu stjórnendur, innherja og fleiri.

Reiknað er með því að fjöldi starfsmanna PwC komi að rannsókninni sem og starfsmenn slitastjórnar og skilanefndar. Sérfræðiteymi  frá PwC í Bretlandi kemur að rannsókninni frá upphafi.

Slitastjórnin áætlar, að farið verði fram með fyrstu riftunarmálin í haust. Jafnframt verði málum vísað til sérstaks saksóknara eða lögregluyfirvalda eftir atvikum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK