Eftir styrkingu krónu í síðustu viku er hún nú sterkari gagnvart evru en hún hefur verið frá miðju síðasta sumri. Evran er nú 177,5 krónur á innlendum gjaldeyrismarkaði, en hæst fór evran í rúmar 186 krónur í annarri viku nóvembermánaðar í fyrra. Styrking krónu gagnvart evru nemur því tæplega 5% frá þeim tíma. Krónan styrktist um tæpt prósent gagnvart evru í vikunni er leið, að því er segir í Morgunkorni Greiningar Íslandsbanka.
Staðan gagnvart öðrum gjaldmiðlum hefur þó minna breyst.
„Styrkingu krónunnar undanfarið má vafa lítið rekja til hertra gjaldeyrishafta, sem að mestu hafa ráðið niðurlögum aflandsmarkaðar með krónur og beint gjaldeyristekjum í auknum mæli inn fyrir landsteinana. Einnig virðist sem erlendir fjárfestar flýti sér hægt við að leysa til sín þær umtalsverðu vaxtatekjur sem þeir hafa fengið frá desemberbyrjun, bæði vegna vaxtagjalddaga ríkisbréfaflokksins RIKB1012 og eins vegna áramótaútgreiðslu vaxta af krónuinnstæðum þeirra í innlendum bönkum. Auk þess er hugsanlegt að innflæði tengt orkufrekum iðnaði eða annarri beinni fjárfestingu erlendra aðila hafi hér haft áhrif," segir í Morgunkorni.
Styrking krónu, þótt hófleg sé enn sem komið er, kemur væntanlega mörgum vel, að því er fram kemur í Morgunkorni.
„ Styrkingin hefur til að mynda haldið aftur af hækkun verðlags síðustu tvo mánuði, og gætu þau áhrif orðið sterkari ef kaupmenn styrkjast í þeirri trú að botni krónunnar hafi verið náð í fyrrahaust. Vart þarf svo að fjölyrða um hversu jákvæð áhrif styrking krónu á fyrirtæki og heimili, þar sem meginhluti höfuðstóls lána fylgir gengi krónu ýmist beint eða óbeint í gegn um verðtryggingu. Þá horfir Seðlabankinn mjög til gengisþróunar krónu þessa dagana, og mun verða viljugri til frekari lækkunar vaxta í mars og maí ef áframhald verður á svipaðri þróun og verið hefur undanfarið."