Getur Pfizer læknað höfuðverk bankans

Actavis stækka

Actavis

Helsti lánadrottinn Actavis, Deutsche Bank, hefur þjáðst af höfuðverk svo mánuðum skiptir vegna Actavis en nú er spurning um hvort bandaríska lyfjafyrirtækið Pfizer geti læknað bankann, skrifar blaðamaður Financial Times. Veltir FT því fyrir sér hvort Pfizer muni kaupa Actavis.

Deutsche Bank fjármagnaði yfirtöku Björgólfs Thors Björgólfssonar á Actavis árið 2007. Björgólfur keypti Actavis gegnum fjárfestingarfélag sitt, Novator, fyrir 3,62 milljarða evra og samkvæmt frétt Dow Jones fréttaveitunnar nýverið stendur bankinn  nú frammi fyrir því, að þurfa að afskrifa stóran hluta af láninu til Novator vegna þess að lánið sé hærra en markaðsvirði Actavis.

Bankinn gat leyst vandann í síðustu viku ef Actavis hefði orðið fyrir valinu hjá eigendum Ratiopharm. Niðurstaðan var hins vegar sú að ísraelska lyfjafyrirtækið Teva fær að kaupa þýska samheitalyfjafyrirtækið, Ratiopharm.

Í FT kemur fram að með sameiningu Actavis og Ratiopharm hefðu samlegðaráhrifin orðið það mikil að Deutsche hefði getað endurmetið stöðuna gagnvart Actavis.

En Actavis var ekki eina félagið sem varð undir í baráttunni við Teva því Pfizer sóttist einnig eftir því að kaupa Ratiopharm.

Segir í FT að staðan sé sú að Pfizer þurfi að eignast samheitalyfjafyrirtæki. Deutsche Bank þurfi að losna við Actavis og ekki hafi tekist að selja Actavis þrátt fyrir að það hafi verið reynt í átján mánuði.

Hér er hægt að lesa nánar um þetta á vef Financial Times
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti »

Bergþóra Þorkelsdóttir.

Verðhækkanir ytra á leið til Íslands

06:31 Fóðurinnflytjendur þurfa að horfast í augu við að hækka verð eftir miklar hráefnisverðhækkanir á alþjóðlegum mörkuðum. „Ég á von á því að við þurfum að hækka verð á fóðri snemmsumars,“ segir Bergþóra Þorkelsdóttir, framkvæmdastjóri Líflands sem er umsvifamikill fóðurframleiðandi, í samtali við Morgunblaðið. Meira »

Hlutabréf lækkuðu um 2% í Japan

06:29 Veruleg lækkun varð á verði hlutabréfa þegar viðskipti hófust í morgun. Í fyrstu viðskiptum lækkaði hlutabréfavísitalan um tæplega 2%. Meira »

Reginn hagnaðist um 138 milljónir

Verslunarmiðstöðin Smáralind.
Í gær, 21:26 Fasteignafélagið Reginn ehf. hagnaðist um 138 milljónir króna á fyrsta fjórðungi 2012 eftir skatta og er reksturinn í samræmi við áætlanir samkvæmt fréttatilkynningu frá félaginu. Meira »

Seðlabanki Íslands heldur gjaldeyrisútboð

Í gær, 17:00 Seðlabanki Íslands býðst til að kaupa evrur í skiptum fyrir íslenskar krónur til fjárfestingar til langs tíma í íslensku atvinnulífi eða gegn greiðslu í ríkisverðbréfum í flokknum RIKS 33 0321. Þetta kemur fram í tilkynningu frá SÍ. Meira »

Kaupmáttarrýrnunin frá 2008 7,6%

Í gær, 14:43 Kaupmáttaraukningin er 5,1% á síðustu tólf mánuðum en þrátt fyrir það hefur kaupmáttur launa rýrnað um 7,6% frá ársbyrjun 2008. Þetta kemur fram á vef BSRB. Meira »

Kaupin á Motorola Mobility frágengin

Í gær, 13:52 Bandaríska tölvufyrirtækið Google hefur lokið við kaup á farsímaframleiðandanum Motorola Mobility.  Meira »

Tekin verði upp grísk evra

Höfuðstöðvar Deutsche Bank í Frankfurt.
Í gær, 21:02 Þýski bankinn Deutsche Bank hefur velt upp þeirri hugmynd að tekin yrði upp sérstök grísk evra sem fella mætti gengið á án þess að Grikkland þyrfti að yfirgefa evrusvæðið ef ríkisstjórn skyldi komast til valda eftir þingkosningarnar 17. júní næstkomandi sem styddi ekki kröfur Evrópusambandsins og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um frekari aðhaldsaðgerðir í landinu. Meira »

Vilja eignast meira í Össuri

Sarah Reinertsen á gervifæti frá Össuri.
Í gær, 15:07 William Demant Invest, sem er stærsti hluthafinn í Össuri hefur gert öðrum hluthöfum í félaginu tilboð um að kaupa hlut þeirra í félaginu. Fjárfestingarfélagið ætlar sér ekki að yfirtaka Össur heldur er tilboðið af tæknilegum ástæðum þar sem hlutur William Demant er kominn yfir 39,88%. Meira »

Innsýn í reksturinn

Facebook lækkar enn

Nasdaq bauð Facebook velkomið á föstudag
Í gær, 14:14 Verð hlutabréfa samskiptavefjarins Facebook hélt áfram að lækka þegar viðskipti hófust á Wall Street í dag.  Meira »

Nýtt umsjónarkerfi frá NordicPhotos

Arnaldur Gauti Johnson, framkvæmdastjóri NordicPhotos.
Í gær, 11:56 NordicPhotos myndabankinn hefur sent frá sér PixPuffin, myndumsjónarkerfi fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki, sem hýst er í vistvænu gagnaveri. Meira »

Reiknar út lánskostnað milli Íslands og evru-svæðis

Í gær, 11:24 Sett hefur verið upp lánareiknivél á vef Já Ísland þar sem hægt er að bera saman hvað kostar að taka húsnæðislán á Íslandi og hvað það kostar í evruríki. Meira »

Jákvæð teikn á lofti

Í gær, 12:31 Útlit er fyrir að Norðurlöndin komist hjá samdráttarskeiði ólíkt mörgum öðrum ríkjum Evrópu. Er þetta einkum rakið til hagvaxtar á Íslandi og Noregi, samkvæmt frétt Bloomberg fréttastofunnar sem fjallar um nýja hagvaxtaspá OECD. Meira »

Óvíst með hvort rannsókn verði haldið áfram

Vincent Tchenguiz.
Í gær, 11:51 Yfirmaður efnahagsbrotadeildarbresku lögreglunnar, Serious Fraud Office, David Green, mun taka ákvörðun um hvort rannsókn á Vincent Tchenguiz í tengslum við fall Kaupþings verði haldið áfram fyrir 18. júní. Meira »

Úrræði SFO í Tchenguiz rannsókn

Robert og Vincent Tchenguiz.
Í gær, 10:47 Efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar, Serious Fraud Office, íhugaði að koma óeinkennisklæddum lögreglumanni fyrir í næturklúbbnum Annabel í tengslum við rannsóknina á bræðrunum Robert og Vincent Tchenguiz. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
  ISK   USD
  EUR   GBP
  CAD   DKK
  NOK   SEK
  CHF   JPY
Gengi gjaldmiðla

Sigurður Már Jónsson

mynd Framtíðarfyrirtæki eða hvað?
Það er ekki hægt að segja annað en að uppbygging og útbreiðsla samskiptasíðunnar Facebook hafi verið ævintýri líkust. Ef litið er á notendur Facebook Meira

Frosti Sigurjónsson

mynd Afnám hafta: Umræður á Alþingi
Afnám gjaldeyrishafta er afar mikilvægt úrlausnarefni stjórnvalda sem hefur verið furðu lítið rætt í Alþingi. Svo bar þó við að málið komst á dagskrá Meira

Már Wolfgang Mixa

mynd Vísitala fjármálalæsis á Íslandi fellur
Stofnun um fjármálalæsi og sálfræðisvið viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík birtir fimmtudaginn 3. maí rannsókn þar sem þekking, viðhorf og hegðun Meira

Bjarni Gylfason

mynd Iðjusemi jafngildir ekki aukinni framleiðni
Þrátt fyrir djúpa kreppu síðustu ár verður ekki litið framhjá þeirri mikilvægu staðreynd að hagþróun hér á landi undanfarna áratugi hefur að jafnaði Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir