Sala Birtíngs langt komin
Hreinn Loftsson er nálægt því að ganga frá sölu á Birtíngi. mbl.is
Tilboð hefur borist í útgáfufélagið Birtíng sem líklegt er að verði tekið. Verðbréfafyrirtækið Arev hefur umsjón með sölu fyrirtækisins.
Hreinn Loftsson, eigandi Birtíngs, segir í samtali við mbl.is að um sé að ræða trausta aðila. Ekki hefur fengust upplýsingar um hverjir tilboðsgjafarnir eru, né heldur um hvaða verðmiði er settur á félagið.
„Það barst tilboð með ákveðnum skilyrðum, sem við erum að skoða núna. Hvort gengið verði endanlega að tilboðinu skýrist á næstu tveimur til þremur vikum," segir Hreinn í samtali við Morgunblaðið.
Birtíngur gefur meðal annars út tímaritin Séð og heyrt, Söguna alla, Vikuna, Gestgjafann og Hús og híbýli. Birtíngur var útgefandi DV um skeið, en seldi dagblaðið til Reynis Traustasonar, ritstjóra blaðsins, og fleiri aðila fyrr á þessu ári.



















