Helstu hlutabréfavísitölur í Evrópu hækkuðu þegar viðskipti hófust klukkan 7 í morgun. Í Frankfurt og París hækkuðu vísitölurnar um rúmt 1% á fyrstu mínútunum.
DAX 30 vísitalan í Frankfurt hefur hækkað um 1,23%, CAC 40 í París um 1,07% og í Lundúnum hefur FTSE 100 hækkað um 0,66%. Í Sviss hefur vísitalan hækkað um 2,24% og í Madríd um 0,87%.