Samið um fjárhagslega endurskipulagningu

Samkomulag hefur tekist við Landsbankann um fjárhagslega endurskipulagningu Olíuverzlunar Íslands hf. (Olís) og tengdra félaga.

Felur samkomulagið í sér, að Landsbankinn leiðréttir og niðurfærir hluta af  lánum félaganna meðal annars í samræmi við þegar kunnar niðurstöður dómsmála um ólögleg gengistryggð lán og að eftirstandandi lán félagsins eru endurskipulögð.

Samkomulagið er endanlegt, þótt ekki liggi fyrir dómsniðurstaða, um allar tegundir gengistryggðra lána til félaganna. Af þeim  sökum er ekki hægt á þessari stundu að leggja á það mat, hve stór hluti niðurfærslunnar er vegna leiðréttinga gengistryggðra lána og hve mikið eftirgjöf bankans, segir í tilkynningu frá Olís

Samkomulagið felur ennfremur í sér, að núverandi hluthafar afli félaginu viðbótarhlutafjár og er samkomulagið þegar að fullu fjármagnað. Hlutafjáraukningin er háð samþykki Samkeppniseftirlitsins. Ekki mun liggja fyrir fyrr en eftir nokkrar vikur hvernig endanlegur hluthafahópur verður samsettur.

Í Viðskiptablaðinu 22. desember sl. kom fram að samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins eru aðilar tengdir Samherja og Kaupfélagi Skagfirðinga meðal þeirra sem koma inn í hluthafahóp Olís. Olís er í dag í eigu þeirra Gísla Baldurs Garðarssonar og Einars Benediktssonar í gegnum félagið FAD 1830 ehf.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Loka