Viðbrögð LV við skýrslu rannsóknarnefndar

Skýrsla um fjárfestingar lífeyrissjóðanna í aðdraganda hrunsins stækka

Skýrsla um fjárfestingar lífeyrissjóðanna í aðdraganda hrunsins mbl.is/Gúna

Lífeyrissjóður verzlunarmanna hefur sent frá fréttatilkynningu vegna útkominnar skýrslu úttektarnefndar Landssamtaka lífeyrissjóða.

Í tilkynningunni segir: „Lífeyrissjóður verzlunarmanna fagnar útkomu skýrslu úttektarnefndar Landssamtaka lífeyrissjóða. Skýrsla nefndarinnar er viðamikil og mikið safn heimilda og upplýsinga um lífeyrissjóðina, jafnt einstaka sjóði sem lífeyriskerfið í heild sinni.“

Tjón vegna efnahagshrunsins

Áfram segir í tilkynningunni: „Eins og áður hefur verið gerð grein fyrir á opinberum vettvangi, m.a. á ársfundum sjóðsins, var beint tjón hans vegna efnahagshrunsins metið um 50 milljarðar króna, eða um fimmtungur af þáverandi stærð sjóðsins. Helstu þættir í því mati eru tjón vegna tapaðra skuldabréfa innlendra banka, sparisjóða og annarra fyrirtækja sem og innlendra hlutabréfa, á tímabilinu frá lokum september 2008 út árið 2009.

Þessar niðurstöður eru í meginatriðum í samræmi við skýrslu úttektarnefndarinnar. Eins og fram kemur í skýrslu nefndarinnar áætlar hún tjón LV vegna innlendra hlutabréfa og skuldabréfa 70,6 milljarða. Því til viðbótar tilgreinir nefndin 9,6 milljarða tap vegna gjaldmiðlavarnarsamninga, eða samtals um 80 milljarða. Munurinn á þeim 50 milljörðum sem sjóðurinn hefur áður gert grein fyrir og nefndum 80 milljörðum liggur í því að úttektarnefndin tekur með í sínum tölum gengislækkun innlendra hlutabréfa fyrir hrun, þ.e. frá janúar 2008 út september sama ár. Einnig tekur nefndin, eins og áður segir, með áætlað tap vegna gjaldmiðlavarnarsamninga. Eins og fram hefur komið er ágreiningur um uppgjör gjaldmiðlavarnarsamninganna og það er nú í höndum lögmanna.“

Margháttaðar umbætur

Og enn segir í fréttatilkynningu LV: „Nefndin leggur fram margvíslegar tillögur um hvað mætti bæta í reglum og starfsháttum lífeyrissjóðanna. Lífeyrissjóður verzlunarmanna hefur að verulegu leyti tekið upp þær reglur sem nefndin fjallar um og leggur til. T.d. gerðist lífeyrissjóðurinn aðili að leiðbeinandi reglum Sameinuðu þjóðanna um ábyrgar fjárfestingar og stjórnarhætti fyrirtækja þegar árið 2006. Nýjar siða- og samskiptareglur voru samþykktar af stjórn sjóðsins árið 2009.  Fjárfestingastefna hefur verið endurnýjuð, innri og ytri endurskoðun er nú framkvæmd af sitt hvoru endurskoðunarfyrirtækinu  svo dæmi séu nefnd. Þá má geta þess að á árinu 2009 var ráðist í umfangsmikla stefnumótunarvinnu með aðstoð ráðgjafa. Sú vinna hefur skilað sér í margháttuðum umbótum.

Skýrsla úttektarnefndarinnar verður nú tekin til ítarlegrar skoðunar á vettvangi sjóðsins.“

Skýrslan, sem kom út í dag, er í fjórum bindum og má finna hér.



Rannsóknarnefnd um starfsemi lífeyrissjóðanna kynnir skýrsluna á Grand hóteli.

Rannsóknarnefnd um starfsemi lífeyrissjóðanna kynnir skýrsluna á Grand hóteli. mbl.is/Kristinn

Nefndarmenn kynntu skýrsluna um lífeyrissjóðina í dag.

Nefndarmenn kynntu skýrsluna um lífeyrissjóðina í dag. Morgunblaðið/Kristinn

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti »

Verðfall við upphaf viðskipta

13:56 Hröð verðlækkun varð í bandarísku kauphöllinni þegar hún opnaði í morgun. Fyrstu 15 mínúturnar eftir upphaf viðskipta lækkaði Dow Jones hlutabréfavísitalan um 83,21 stig, eða 0,67%. S&P lækkaði um 8,87 stig, eða einnig um 0,67%. Nasdaq-vísitalan lækkaði um 0,87% Meira »
Ný fiskimjölsverksmiðja HB Granda á Vopnafirði.

HB Grandi fjárfestir meira á Vopnafirði

12:18 Miklar framkvæmdir eru nú í gangi við uppsjávarfrystihús HB Granda á Vopnafirði. Unnið er að því að koma fyrir nýjum flökunarvélum og auka frystigetuna. Meira »

4,5 milljarða hagnaður hjá Arion

09:59 Afkoma Arion banka á fyrsta ársfjórðungi ársins var jákvæð um 4,5 milljarða króna eftir skatta samanborið við 3 milljarða á árinu 2011. Fram kemur í tilkynningu frá bankanum að arðsemi eigin fjár hafi verið 16,5% samanborið við 11,3% á sama tímabili árið 2011. Meira »

Verðmæti sjávarafla eykst mikið

09:36 Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 30,1 milljarði króna á fyrstu tveimur mánuðum ársins 2012 samanborið við 23,5 milljarða á sama tímabili 2011. Aflaverðmæti hefur því aukist um 6,6 milljarða eða 28,1% á milli ára. Meira »

Íhugar að hætta rannsókn

Robert og Vincent Tchenguiz
08:15 David Green, nýr yfirmaður efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar, Serious Fraud Office (SFO), segist ætla að skoða hvort rannsókn á hugsanlegum brotum kaupsýslumannsins Vincent Tchenguiz verði hætt. Hann viðurkennt að mistök hafi verið gerð í rannsókninni. Meira »

Verðhækkanir ytra á leið til Íslands

Bergþóra Þorkelsdóttir.
06:31 Fóðurinnflytjendur þurfa að horfast í augu við að hækka verð eftir miklar hráefnisverðhækkanir á alþjóðlegum mörkuðum. „Ég á von á því að við þurfum að hækka verð á fóðri snemmsumars,“ segir Bergþóra Þorkelsdóttir, framkvæmdastjóri Líflands sem er umsvifamikill fóðurframleiðandi, í samtali við Morgunblaðið. Meira »

Facebook skráning gengur ekki snurðulaust

09:54 Skráning samskiptavefsins Facebook á bandaríska hlutabréfamarkaðinn hefur ekki gengið snurðulaust fyrir sig. Í gær lækkaði verð á bréfunum um 9% og nú hafa komið í ljós áhyggjur af því með hvaða hætti ráðgjafar Facebook veittu fjárfestum upplýsingar. Meira »

Þjóðverjar útiloka útgáfu evruskuldabréfa

Wolfgang Schaeuble fjármálaráðherra Þýskalands.
09:06 Wolfgang Schaeuble fjármálaráðherra Þýskalands segir ekki koma til greina að gefa út sérstök evruskuldabréf, en Francois Hollande, forseti Frakklands, hefur haldið slíkri hugmynd á lofti. Meira »

Innsýn í reksturinn

Ungmennin eru líka hér án atvinnu

Biðröð við ráðningaskrifstofu í New York.
07:59 Tæp 13% ungs fólks í heiminum eru atvinnulaus og samkvæmt skýrslu Alþjóðasambands launþega (ILO) er útlit fyrir að aðstæður þessa fólks muni ekki batna á næstu fjórum árum. Meira »

Reginn hagnaðist um 138 milljónir

Verslunarmiðstöðin Smáralind.
Í gær, 21:26 Fasteignafélagið Reginn ehf. hagnaðist um 138 milljónir króna á fyrsta fjórðungi 2012 eftir skatta og er reksturinn í samræmi við áætlanir samkvæmt fréttatilkynningu frá félaginu. Meira »

Seðlabanki Íslands heldur gjaldeyrisútboð

Í gær, 17:00 Seðlabanki Íslands býðst til að kaupa evrur í skiptum fyrir íslenskar krónur til fjárfestingar til langs tíma í íslensku atvinnulífi eða gegn greiðslu í ríkisverðbréfum í flokknum RIKS 33 0321. Þetta kemur fram í tilkynningu frá SÍ. Meira »

Hlutabréf lækkuðu um 2% í Japan

06:29 Veruleg lækkun varð á verði hlutabréfa þegar viðskipti hófust í morgun. Í fyrstu viðskiptum lækkaði hlutabréfavísitalan um tæplega 2%. Meira »

Tekin verði upp grísk evra

Höfuðstöðvar Deutsche Bank í Frankfurt.
Í gær, 21:02 Þýski bankinn Deutsche Bank hefur velt upp þeirri hugmynd að tekin yrði upp sérstök grísk evra sem fella mætti gengið á án þess að Grikkland þyrfti að yfirgefa evrusvæðið ef ríkisstjórn skyldi komast til valda eftir þingkosningarnar 17. júní næstkomandi sem styddi ekki kröfur Evrópusambandsins og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um frekari aðhaldsaðgerðir í landinu. Meira »

Vilja eignast meira í Össuri

Sarah Reinertsen á gervifæti frá Össuri.
Í gær, 15:07 William Demant Invest, sem er stærsti hluthafinn í Össuri hefur gert öðrum hluthöfum í félaginu tilboð um að kaupa hlut þeirra í félaginu. Fjárfestingarfélagið ætlar sér ekki að yfirtaka Össur heldur er tilboðið af tæknilegum ástæðum þar sem hlutur William Demant er kominn yfir 39,88%. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
  ISK   USD
  EUR   GBP
  CAD   DKK
  NOK   SEK
  CHF   JPY
Gengi gjaldmiðla

Sigurður Már Jónsson

mynd Framtíðarfyrirtæki eða hvað?
Það er ekki hægt að segja annað en að uppbygging og útbreiðsla samskiptasíðunnar Facebook hafi verið ævintýri líkust. Ef litið er á notendur Facebook Meira

Frosti Sigurjónsson

mynd Afnám hafta: Umræður á Alþingi
Afnám gjaldeyrishafta er afar mikilvægt úrlausnarefni stjórnvalda sem hefur verið furðu lítið rætt í Alþingi. Svo bar þó við að málið komst á dagskrá Meira

Már Wolfgang Mixa

mynd Vísitala fjármálalæsis á Íslandi fellur
Stofnun um fjármálalæsi og sálfræðisvið viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík birtir fimmtudaginn 3. maí rannsókn þar sem þekking, viðhorf og hegðun Meira

Bjarni Gylfason

mynd Iðjusemi jafngildir ekki aukinni framleiðni
Þrátt fyrir djúpa kreppu síðustu ár verður ekki litið framhjá þeirri mikilvægu staðreynd að hagþróun hér á landi undanfarna áratugi hefur að jafnaði Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir