Vísitölur aftur eins og 2008
Hlutabréfavísitölur í Bandaríkjunum hækkuðu dag og hafa sumar ekki verið hærri síðan fyrir hrun. Myndin er úr safni. AP
Dow Jones vísitalan hefur ekki verið hærri síðan fyrir hrunið 2008, en hún hækkaði í dag um 130 stig, samkvæmt frétt á The Washington Post. Þá er svo komið að Nasdaq vísitalan hefur ekki verið hærri síðan árið 2000, en hún hækkaði um 1,5% í dag.
Eru þessar breytingar m.a. komnar í kjölfar þess að atvinnuleysi hefur dregist saman í Bandaríkjunum á undanförnum þremur árum.
Áður en markaðir opnuðu í morgun var tilkynnt að fyrirtæki hefðu ráðið 243.000 manns í vinnu í janúar. Þetta er mesta mánaðaraukning á vinnumarkaði síðustu níu mánuðina í Bandaríkjunum. Nemur atvinnuleysi í Bandaríkjunum nú 8,3%.
Þessar óvæntu upplýsingar hleyptu verði hlutabréf af stað. Í fyrstu hækkaði Dow Jones vísitalan um 161 stig, en féll svo örlítið þegar leið á daginn.
„Í þessu hagkerfi er bara eitt sem skiptir mestu máli nú og sú breyta nefnist atvinna,“er haft eftir Lawrence Creatura, framkvæmdastjóra hjá samtökum fjárfesta og þá bætir hann við : „Þessar fréttir voru frábærar. Þetta var ofar öllum væntingum. Talan (243.000) var mun hærri en bestu spár höfðu sagt til um.“
Standard og Poor´s hækkaði um 1,3%
Matsfyrirtækið Standard og Poor's hækkaði einnig hlutabréfavísitölu sína um 1,3% í dag. Er það fimmta vikan í röð sem fyrirtækið hækkar vísitölu sína, en hún byggir á mati á 500 fyrirtækjum og hefur farið upp um 6,8%, það sem af er þessu ári.
Fleiri vísbendingar eru um að efnahagskerfið í Bandaríkjunum sé að styrkja sig.
Þá vakti athygli að hækkanir í Bandaríkjunum höfðu áhrif til góðs hjá evrulöndunum, sem gíma við ótal erfiðleika þessa dagana. DAX vísitalan í Þýskalandi hækkaði um 1,7% og CAC-40 í Frakklandi fór upp um 1,5%.



















