Viðskipti
| AFP
| 7.2.2012
| 21:49
| Uppfært
8.2.2012
0:45
Fleiri taka lán
Bandarískir neytendur tóku fleiri lán í desember en ráð hafði verið gert fyrir. Þykir þetta vísbending um að efnahagur landsins sé að rétta úr kútnum.
Hagfræðingar höfðu fyrirfram spáð því að neytendur myndu fá 8,5 milljarða bandaríkjadala að láni en staðreyndin er sú að þeir tóku lán sem nema samtals 19,3 milljörðum dala.
Frá því kreppan skall á í lok árs 2008 hafa bandarískir neytendur haldið að sér höndum og tekið lítið fé að láni. Þá hafa bankar og fjármálafyrirtæki einnig verið rög við að lána peninga. En nú virðist þetta hvort tveggja vera að breytast.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















