Viðskipti
| AP
| 10.2.2012
| 19:42
| Uppfært
20:53
S&P: Egyptaland dýpra í ruslflokkinn
Egypska ríkið fékk skell í dag er matsfyrirtækið Standard & Poor's lækkaði lánshæfiseinkunn þess „dýpra niður í ruslflokk,“ líkt og það er orðað í frétt AP. Ótryggt stjórnmálaástand og stöðug átök í landinu eru sögð skýringin.
Lækkunin er enn eitt áfallið í egypsku efnahagslífi en á síðustu mánuðum hafa verkföll og mótmæli sett stórt strik í reikninginn.
Standard & Poor's sagði í yfirlýsingu í dag að lánshæfiseinkunnin færi úr B+ í B með neikvæðum horfum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















