Viðskipti
| mbl
| 10.2.2012
| 16:05
| Uppfært
16:22
Verne Global í samstarf við Opin kerfi
Verne Global tilkynnti í gær að það hafi valið Opin kerfi sem samstarfs- og þjónustuaðila til stuðnings við starfsemi sína hér á landi. Verne Global opnaði í vikunni eitt fullkomnasta gagnaver heims að Ásbrú í Reykjanesbæ.
Samhliða þessum samningi mun Opin kerfi flytja hýsingarstarfsemi sína og innri kerfi í gagnaver Verne Global, að því er segir í tilkynningu frá Opnum kerfum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















