Atvinnuleysið 7,2%

Vinnumálastofnun stækka

Vinnumálastofnun mbl.is/Ómar Óskarsson

Skráð atvinnuleysi í janúar var 7,2% en að meðaltali voru 11.452 atvinnulausir í janúar og fækkaði atvinnulausum um 308 að meðaltali frá desember eða um 0,1 prósentustig.

Venjulega fjölgar atvinnuleitendum nokkuð milli desember og janúar mánaða, en fækkun nú skýrist einkum af tvennu.

500 afskráðir á atvinnuleysisskrá

Annars vegar að flestir þeirra ríflega 900 einstaklinga sem tóku þátt í námsátakinu „Nám er vinnandi vegur“ halda áfram námi vormisserið 2012 og fóru því af atvinnuleysisskrá um síðustu áramót.

Í annan stað rann út um síðustu áramót bráðabirgðaákvæði um minnkað starfshlutfall og í kjölfarið afskráðust um áramótin nálægt 500 manns sem höfðu fengið greiddar atvinnuleysisbætur með hlutastarfi, segir í frétt Vinnumálastofnunar.

Fyrir ári nam aukning atvinnuleysis frá janúar til febrúar 2011, 0,1 prósentustigi, fór úr 8,5% í jan. 2011 í 8,6% í feb. 2011. Gera má ráð fyrir að atvinnuleysi breytist með líkum hætti milli mánuða í ár og síðasta ár og verði á bilinu 7,1‐7,4%.

Atvinnulausum fækkar á höfuðborgarsvæðinu

Körlum á atvinnuleysisskrá fjölgaði um 61 að meðaltali en konum fækkaði um 369. Atvinnulausum fækkaði um 313 á höfuðborgarsvæðinu en fjölgaði um 5 á landsbyggðinni. Atvinnuleysið var 7,8% á höfuðborgarsvæðinu og minnkaði úr 8% í fyrri mánuði. Á landsbyggðinni jókst atvinnuleysið úr 6,1% í desember 2011 í 6,2% í janúar 2012. Mest var atvinnuleysið á Suðurnesjum 12,5%, en minnst á Norðurlandi vestra 2,8%. Atvinnuleysið var 7,5% meðal karla og 6,8% meðal kvenna.

Alls voru 12.080 manns atvinnulausir í lok janúar. Þeir sem voru atvinnulausir að fullu voru hins vegar 10.656. Fækkun atvinnulausra í lok janúarmánaðar frá lokum desember nam 599 en 40 færri karlar voru á skrá og 559 færri konur m.v. desemberlok. Á landsbyggðinni fækkaði um 205 og um 394 á höfuðborgarsvæðinu.

5.458 án atvinnu í sex mánuði eða meira

Fjöldi þeirra sem hafa verið atvinnulausir lengur en 6 mánuði er nú 5.458 og hefur fækkað um 1.169 frá lokum desember og eru um 45% þeirra sem eru á atvinnuleysisskrá í janúar. Þeim sem verið hafa atvinnulausir í meira en eitt ár fækkar úr 4.526 í lok desember í 3.695 í lok janúar.

16% atvinnulausra á aldrinum 16-24 ára

Alls voru 1.930 á aldrinum 16‐24 ára atvinnulausir í lok janúar eða 16% allra atvinnulausra. Í lok desember voru 2.040 á þessum aldri atvinnulausir og hefur þeim fækkað milli mánaða um 110. Í lok janúar 2011 var fjöldi atvinnulausra ungmenna 2.670.

 1.245 Pólverjar án atvinnu

Alls voru 2.126 erlendir ríkisborgarar án atvinnu í lok janúar, þar af 1.245 Pólverjar eða um 59% þeirra útlendinga sem voru á skrá í lok mánaðarins. Flestir atvinnulausra erlendra ríkisborgara voru starfandi í byggingariðnaði eða 420.

Samtals voru 1.178 af þeim sem voru skráðir atvinnulausir í lok janúar í hlutastörfum, þ.e. þeir sem eru í reglubundnum hlutastörfum eða með tilfallandi eða tímabundið starf á síðasta skráningardegi í janúar. Þetta eru um 10% af þeim sem voru skráðir atvinnulausir í lok janúar.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti »

Verðfall við upphaf viðskipta

13:56 Hröð verðlækkun varð í bandarísku kauphöllinni þegar hún opnaði í morgun. Fyrstu 15 mínúturnar eftir upphaf viðskipta lækkaði Dow Jones hlutabréfavísitalan um 83,21 stig, eða 0,67%. S&P lækkaði um 8,87 stig, eða einnig um 0,67%. Nasdaq-vísitalan lækkaði um 0,87% Meira »
Ný fiskimjölsverksmiðja HB Granda á Vopnafirði.

HB Grandi fjárfestir meira á Vopnafirði

12:18 Miklar framkvæmdir eru nú í gangi við uppsjávarfrystihús HB Granda á Vopnafirði. Unnið er að því að koma fyrir nýjum flökunarvélum og auka frystigetuna. Meira »

4,5 milljarða hagnaður hjá Arion

09:59 Afkoma Arion banka á fyrsta ársfjórðungi ársins var jákvæð um 4,5 milljarða króna eftir skatta samanborið við 3 milljarða á árinu 2011. Fram kemur í tilkynningu frá bankanum að arðsemi eigin fjár hafi verið 16,5% samanborið við 11,3% á sama tímabili árið 2011. Meira »

Verðmæti sjávarafla eykst mikið

09:36 Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 30,1 milljarði króna á fyrstu tveimur mánuðum ársins 2012 samanborið við 23,5 milljarða á sama tímabili 2011. Aflaverðmæti hefur því aukist um 6,6 milljarða eða 28,1% á milli ára. Meira »

Íhugar að hætta rannsókn

Robert og Vincent Tchenguiz
08:15 David Green, nýr yfirmaður efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar, Serious Fraud Office (SFO), segist ætla að skoða hvort rannsókn á hugsanlegum brotum kaupsýslumannsins Vincent Tchenguiz verði hætt. Hann viðurkennt að mistök hafi verið gerð í rannsókninni. Meira »

Verðhækkanir ytra á leið til Íslands

Bergþóra Þorkelsdóttir.
06:31 Fóðurinnflytjendur þurfa að horfast í augu við að hækka verð eftir miklar hráefnisverðhækkanir á alþjóðlegum mörkuðum. „Ég á von á því að við þurfum að hækka verð á fóðri snemmsumars,“ segir Bergþóra Þorkelsdóttir, framkvæmdastjóri Líflands sem er umsvifamikill fóðurframleiðandi, í samtali við Morgunblaðið. Meira »

Facebook skráning gengur ekki snurðulaust

09:54 Skráning samskiptavefsins Facebook á bandaríska hlutabréfamarkaðinn hefur ekki gengið snurðulaust fyrir sig. Í gær lækkaði verð á bréfunum um 9% og nú hafa komið í ljós áhyggjur af því með hvaða hætti ráðgjafar Facebook veittu fjárfestum upplýsingar. Meira »

Þjóðverjar útiloka útgáfu evruskuldabréfa

Wolfgang Schaeuble fjármálaráðherra Þýskalands.
09:06 Wolfgang Schaeuble fjármálaráðherra Þýskalands segir ekki koma til greina að gefa út sérstök evruskuldabréf, en Francois Hollande, forseti Frakklands, hefur haldið slíkri hugmynd á lofti. Meira »

Innsýn í reksturinn

Ungmennin eru líka hér án atvinnu

Biðröð við ráðningaskrifstofu í New York.
07:59 Tæp 13% ungs fólks í heiminum eru atvinnulaus og samkvæmt skýrslu Alþjóðasambands launþega (ILO) er útlit fyrir að aðstæður þessa fólks muni ekki batna á næstu fjórum árum. Meira »

Reginn hagnaðist um 138 milljónir

Verslunarmiðstöðin Smáralind.
Í gær, 21:26 Fasteignafélagið Reginn ehf. hagnaðist um 138 milljónir króna á fyrsta fjórðungi 2012 eftir skatta og er reksturinn í samræmi við áætlanir samkvæmt fréttatilkynningu frá félaginu. Meira »

Seðlabanki Íslands heldur gjaldeyrisútboð

Í gær, 17:00 Seðlabanki Íslands býðst til að kaupa evrur í skiptum fyrir íslenskar krónur til fjárfestingar til langs tíma í íslensku atvinnulífi eða gegn greiðslu í ríkisverðbréfum í flokknum RIKS 33 0321. Þetta kemur fram í tilkynningu frá SÍ. Meira »

Hlutabréf lækkuðu um 2% í Japan

06:29 Veruleg lækkun varð á verði hlutabréfa þegar viðskipti hófust í morgun. Í fyrstu viðskiptum lækkaði hlutabréfavísitalan um tæplega 2%. Meira »

Tekin verði upp grísk evra

Höfuðstöðvar Deutsche Bank í Frankfurt.
Í gær, 21:02 Þýski bankinn Deutsche Bank hefur velt upp þeirri hugmynd að tekin yrði upp sérstök grísk evra sem fella mætti gengið á án þess að Grikkland þyrfti að yfirgefa evrusvæðið ef ríkisstjórn skyldi komast til valda eftir þingkosningarnar 17. júní næstkomandi sem styddi ekki kröfur Evrópusambandsins og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um frekari aðhaldsaðgerðir í landinu. Meira »

Vilja eignast meira í Össuri

Sarah Reinertsen á gervifæti frá Össuri.
í gær William Demant Invest, sem er stærsti hluthafinn í Össuri hefur gert öðrum hluthöfum í félaginu tilboð um að kaupa hlut þeirra í félaginu. Fjárfestingarfélagið ætlar sér ekki að yfirtaka Össur heldur er tilboðið af tæknilegum ástæðum þar sem hlutur William Demant er kominn yfir 39,88%. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
  ISK   USD
  EUR   GBP
  CAD   DKK
  NOK   SEK
  CHF   JPY
Gengi gjaldmiðla

Sigurður Már Jónsson

mynd Framtíðarfyrirtæki eða hvað?
Það er ekki hægt að segja annað en að uppbygging og útbreiðsla samskiptasíðunnar Facebook hafi verið ævintýri líkust. Ef litið er á notendur Facebook Meira

Frosti Sigurjónsson

mynd Afnám hafta: Umræður á Alþingi
Afnám gjaldeyrishafta er afar mikilvægt úrlausnarefni stjórnvalda sem hefur verið furðu lítið rætt í Alþingi. Svo bar þó við að málið komst á dagskrá Meira

Már Wolfgang Mixa

mynd Vísitala fjármálalæsis á Íslandi fellur
Stofnun um fjármálalæsi og sálfræðisvið viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík birtir fimmtudaginn 3. maí rannsókn þar sem þekking, viðhorf og hegðun Meira

Bjarni Gylfason

mynd Iðjusemi jafngildir ekki aukinni framleiðni
Þrátt fyrir djúpa kreppu síðustu ár verður ekki litið framhjá þeirri mikilvægu staðreynd að hagþróun hér á landi undanfarna áratugi hefur að jafnaði Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir