Það er regla fremur en undantekning að sjávarútvegur á heimsvísu er ekki sérstaklega skattlagður umfram aðrar atvinnugreinar, heldur býr hann einungis við sama skattaumhverfi.
Í fréttaskýringu í Viðskiptablaði Morgunblaðsins í dag kemur m.a. fram að algengt sé að sjávarútvegur sé rekinn á umtalsverðum styrkjum frá ríkinu.
Örfáar undantekningar eru frá þeirri meginreglu að þjóðir leggi almennt ekki sérstakan skatt á sjávarútveg, t.d. í Namibíu, Færeyjum og á Falklandseyjum. Tilraunir voru gerðar í Rússlandi og Eistlandi með uppboð á aflaheimildum en því var hætt.