Íslenska ríkið fékk sanngjarnt verð við einkavæðingu bankanna á árunum 1998-2003 ef horft er til verðs á bönkum annars staðar á Norðurlöndum og Evrópu á sama tíma.
Þetta má lesa úr ársskýrslu Bankasýslu ríkisins sem kemur út í dag. Mælikvarðinn sem Bankasýslan horfir til er verð viðskiptabanka með tilliti til eigin fjár, að því er fram kemur í umfjöllun um þetta mál í viðskiptablaði Morgunblaðsins í dag.