Olíuframleiðsla Noregs að stöðvast

Allt útlit er fyrir að olíuvinnsla í Noregi stöðvist á miðnætti annað kvöld eftir árangurslausan samningafund milli samtaka olíuframleiðenda og fulltrúa verkalýðsfélaganna.

Fundurinn stóð yfir í 13 klukkutíma hjá sáttasemjara, en upp úr viðræðum slitnaði í morgun. Samkomulag strandaði á deilu um eftirlaun, en stéttarfélögin kröfðust þess að lífeyrisaldur yrði lækkaður úr 65 árum í 62. Þessu höfnuðu samtök olíuframleiðenda.

Verkall um 700 starfsmanna hófst fyrir tveimur vikum og hefur nú þegar kostað framleiðendur 2,9 milljónir dollara.

Samtök olíuframleiðanda tilkynntu fyrir helgi að ef ekki tækjust samningar um helgina myndu þau skella á verkbanni sem þýðir að allri olíuvinnslu Norðmanna verður hætt. Verkbannið nær til um 6.500 starfsmanna.

Noregur er áttundi stærsti olíuframleiðandi í heimi og næststærsti framlandi á jarðgasi. Síðasta verkfall í norskum olíuiðnaði var árið 2004. Það stóð í viku.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK