2,7% halla á ríkissjóði Hollands

Mark Rutte forsætisráðherra Hollands.
Mark Rutte forsætisráðherra Hollands. JERRY LAMPEN

Stjórnvöld í Hollandi stefna að því að halli á ríkissjóði verði kominn niður í 2,7% á næsta ári. Evrópusambandið hefur beint þeim tilmælum til aðildarlanda sinna að hallinn fari ekki yfir 3%.

Stjórnvöld í Hollandi höfðu áður sagt að hallinn á næsta ári yrði 2,9%, en nú eru horfur á að hann verði minni. Í fyrra var 4,7% halli á rekstri ríkissjóðs Hollands.

Fimm flokkar í Hollandi náðu í apríl samkomulagi um niðurskurð í ríkisútgjöldum. Samkvæmt samkomulaginu á að skera niður í ríkisútgjöldum um 12,4 milljarða evra á næsta ári.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK