Verðbólguvæntingar stjórnenda lækka mikið

Lækkun verðbólguvæntinga skýrist af styrkingu krónunnar og hjaðnandi verðbólgu undanfarið.
Lækkun verðbólguvæntinga skýrist af styrkingu krónunnar og hjaðnandi verðbólgu undanfarið. mbl.is/Ernir Eyjólfsson

Stjórnendur í atvinnulífinu vænta þess að verðbólga næstu 12 mánaða verði 3,2%. Þetta er ein af niðurstöðum nýrrar könnunar á stöðu og framtíðarhorfum stærstu fyrirtækja landsins, sem gerð var í síðasta mánuði fyrir Samtök atvinnulífsins og Seðlabankann.

Verðbólguvæntingarnar eru mun lægri en fyrr á þessu ári, og á því síðasta, þegar stjórnendur bjuggust við 4-4,5% verðbólgu, að því er segir á vef SA.

Þá segir, að væntingar um minni verðbólgu sé mikilvægur áfangi í átt að verðstöðugleika og stuðli að því að vextir geti lækkað. Lækkun verðbólguvæntinga skýrist af styrkingu krónunnar og hjaðnandi verðbólgu undanfarið. Verðbólgan sé nú rúmlega 3% og hafi  hjaðnað úr 4-6% á síðasta ári. Lækkun verðbólguvæntinga stjórnenda auki bjartsýni um að verðbólgumarkmið Seðlabankans, 2,5%, sé innan seilingar.

Háar verðbólguvæntingar hafi tilhneigingu til að verða að veruleika þar sem samningar á milli aðila um verð á vöru og þjónustu fram í tímann fari meðal annars eftir því hvernig vænst sé að verðlag þróist.

Nánar á vef SA.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK