Framtakssjóður hagnast um 7,6 milljarða

Framtakssjóður Íslands.
Framtakssjóður Íslands.

Árið 2013 var fjórða starfsár Framtakssjóðs Íslands og nam hagnaður af starfsemi sjóðsins 7.636 milljónum króna, samanborið við 6.111 milljónir króna árið áður. Heildareignir sjóðsins í árslok námu 35,9 milljörðum króna en þær voru 29,6 milljarðar á sama tíma 2012. Eigið fé í árslok var 32,2 milljarðar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sjóðnum. 

Þær breytingar urðu á eignasafni sjóðsins á árinu 2013 að 5% hlutur í Icelandair var seldur og einnig 24% hlutur í N1 til forkaupsrétthafa samhliða skráningu í Kauphöll Íslands. Eftir þessi viðskipti átti Framtakssjóðurinn í lok árs 7% í Icelandair sem selt var í byrjun þessa árs og 20,9% í N1. Þá keypti FSÍ 38% hlut í Invent Farma ehf. Alls hefur sjóðurinn fjárfest í níu félögum frá stofnun en sex voru í eignasafni sjóðsins í árslok 2013. Það eru: Advania, Icelandair, Icelandic, N1 og Promens.

Alls voru ríflega 9 milljarðar króna greiddir til hluthafa Framtakssjóðsins vegna ársins 2013. Á aðalfundi sjóðsins í dag var samþykkt að greiða hluthöfum 6,6 milljarða í arð. Alls hefur sjóðurinn þá greitt 27,5 milljarða til eigenda sinna sem eru einkum lífeyrissjóðir landsmanna og Landsbankinn.

Skoða stofnun nýs sjóðs

Þorkell Sigurlaugsson, stjórnarformaður Framtakssjóðs Íslands, segir í tilkynningunni að skoðað sé að stofna nýjan sjóð sem yrði rekinn af Framtakssjóði Íslands til að koma að atvinnulífinu sem virkur þáttakandi. „Árið 2013 reyndist afar gott í rekstri Framtakssjóðsins. Aðkoma sjóðsins sem virkur eigandi í fyrirtækjum hefur skilað eigendum hans verulegri arðsemi. Innan eigendahópsins hafa verið viðraðar hugmyndir um að nýta þá reynslu og þekkingu sem byggst hefur upp inna sjóðsins til að mynda nýjan sjóð sem rekinn yrði af Framtakssjóði Íslands. Verkefnin framundan eru önnur en þau sem blöstu við þegar sjóðurinn var stofnaður. Nýjum sjóði yrði einkum ætlað að koma að stærri verkefnum sem krefjast virks eignarhalds svo sem fárfestingum í innviðum samfélagsins og stærri verkefnum þar sem kraftar sjóðsins og frumkvæði nýttust til útflutnings, gjaldeyrisöflunar og sóknar í atvinnumálum. Þessar hugmyndir eru á byrjunarstigi en ég tel ánægjuefni hversu vel hefur verið í þær tekið.“ 

Þorkell Sigurlaugsson, stjórnarformaður Framtakssjóðs Íslands.
Þorkell Sigurlaugsson, stjórnarformaður Framtakssjóðs Íslands. mbl.is/Ernir
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Loka