Hagstofan mun gera ferðaþjónustureikninga

Ragnheiður Elín Árnadóttir, viðskipta- og iðnaðarráðherra.
Ragnheiður Elín Árnadóttir, viðskipta- og iðnaðarráðherra. mbl.is/Friðrik

Hagstofan mun hér eftir halda utan um gerð ferðaþjónustureikninga. Ragnheiður Elín Árnadóttir, ráðherra ferðamála, og Ólafur Hjálmarsson Hagstofustjóri skrifuðu í dag undir samning þessa efnis og er hann til þriggja ára. 

Í frétt á vef iðnaðar- og viðskiptaráðuneytisins segir að mikil vöntun hafi verið á tölfræði er varðar efnahagsleg áhrif ferðaþjónustunnar og því hafi samanburður við önnur lönd verið erfiður.

Markmiðið með samningnum er að tryggja að hægt verði að meta efnahagsleg áhrif ferðaþjónustu fyrir íslenskt efnahagslíf þannig að samanburður fáist á vægi hennar milli landa.

Ferðaþjónustureikningar (Tourism Satellite Accounts) eru unnir samkvæmt aðferðafræði TSA og taka þeir til neyslu og framleiðslu í ferðaþjónustu, framleiðsluvirði, fjárfestingu, samneyslu og fleiri þátta sem viðkoma reikningunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK